Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
mán. 7.8.2006
The Governator
Það er ekki nokkur vafi á því að það er miklu svalara að hafa Arnold Swartzenegger sem fylkisstjóra Kalíforníu, en einhvern óspennandi og litlausan "pólítíkus". Bandaríski fjölmiðlaiðnaðurinn fattar þetta líka, og nú hafa Steven Spielberg og Jeffrey Katzenberg lýst yfir stuðningi við Arnold - en þeir félagar hafa verið með öruggustu stuðningsmönnum demokrata í fylkinu, þegar kemur að peningagjöfum, allavegana.
Á myndinni má sjá stórmennið Arnold í fylgd einhvers annars en demokratans Spielberg.
Frelsi og franskar leggja það ekki í vana sinn að lýsa opinberlega yfir stuðningi við frambjoðendur Republikana, en þar til annað sannast, er það skoðun Freedom Fries að Arnold eigi að vinna kosningarnar: Go mr. Governator Go!
mán. 7.8.2006
Baráttan um forsetakosningarnar 2008 og Joe Lieberman
Í Connecticut situr Joe Lieberman, öldungadeildarþingmaður til margra, margra ára - fyrrverandi forsetaframbjóðandi, varaforsetaefni Al Gore, og helsti stuðningsmaður núverandi ríkisstjórnar og heimskulegs stríðsreksturs þeirra í röðum demokrata. Lieberman situr semsagt undir árásum frá alvöru demokrötum og öðrum vondum vinstrimönnum, sem hafa áhyggjur af því að það sé lítið vit í að kjósa demokrata á þing, ef þeir séu svo lítið annað en já-menn andstæðinganna.
Þetta hefur sett Lieberman í ákveðna klemmu, því hann hefur til þessa byggt pólítska sjálfsmynd sína og career á að vera 'aisle-crosser' pólítíkus ser er tilbúinn til að vinna með andstæðingunu, maður sem tekur ábyrgð á vandamálum þjóðarinnar og stendur með forsetanum á stríðstímum. Slík pólítík virtist mjög heppileg fyrst eftir september 2001, en hefur á seinasta ári eða svo orðið æ óvinsælli.
Fyrir nokkrum vikum minntist ég á að demokratar stefndu að því að vinna meirihluta í bandaríkjaþingi með því að einbeita sér að því að fella 'moderate' republikana í Norð-Austurríkjunum - fylkjum þar sem kjósendur eru almennt mjög ósáttir við forsetann (ólíkt Suðurríkjunum, og Utah þar sem mikið af almenningi lifir enn í þeirri trú að Bush stjórnin sé að vinna að hagsmunum þeirra og viti hvað bandaríkjunum sé fyrir bestu). Þetta plan Demokrata gæti alveg virkað - það eru nógu margir republikanar í 'democratic-leaning' kjördæmum til þess að fleyta demokrataflokknum langleiðina með að ná þinginu. Öldungadeildin mun verða erfiðari biti.
Barátta vinstrisinnaðari demokrata gegn Lieberman má sjá sem hliðstæðu þessarar taktík - tilraunum vinstrimanna innan Demokrataflokksins til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri innan flokksins. Á næstu tveimur árum eiga demokratar nefnilega eftir að finna út hvað flokkurinn vill bjóða kjósendum upp á þegar loksins kemur að því að kjörtímabil Bush er á enda. Ég hef áður sagt að ég hef enga trú á því að demokratar eigi eftir að koma sér upp stefnuskrá og 'message' sem bandarískir kjósendur sætta sig við. Flokkurinn þarf nefnilega ekki bara að ná hvíta húsinu, heldur líka öruggu taki á þinginu eða öldungadeildinni. Ef bæði þingið og öldungadeildin eru mjög klofin, eða í höndum Republikana breytir það litlu hvort demokratar vinna forsetakosningarnar - nema þeim takist að finna jafn charismatic og klókan frambjóðanda og Bill Clinton.
Og á næstu misserum munu miðjumenn, hægrimenn og vinstrimenn innan Demokrataflokksins berjast um það hver hafi yfirhöndina, hver fái að móta þetta 'message' sem flokkurinn flytur kjósendum haustið 2008. Það er ennþá of snemmt að segja til um hvort flokknum tekst þetta. En í millitíðinni er Joe Lieberman í djöfulsins vandræðum: Hann þarf að sannfæra kjósendur í Connecticut að hann sé þeirra maður, hann sé á móti stríðinu, en um leið þarf hann að sanna að hann sé líka trúr sannfæringu sinni, sem er, einmitt: að stríðið sé gott og það eigi ekki draga herinn til baka! Svona vandræði eru kjörið tilefni til 'Rumsfeldískra' yfirlýsinga:
Lieberman said he wanted to withdraw American troops as fast as anyone, yet insisted that leaving Iraq now would be a disaster that could worsen the sectarian violence there. And while President Bush may share that view, he added, Connecticut voters were free not to. I not only respect your right to disagree or question the president or anyone else, including me, I value your right to disagree, he said at a community center in East Haven.
Semsagt: Lieberman er fulltrúi þeirra sem eru ósammála Joe Lieberman? Á meðan lítur út fyrir að Ned Lamont, margmilljónamæringur og stofnandi kapalsjónvarsfyrirtækis, muni busta Lieberman í prófkjöri demokrata - Lieberman er með 41% stuðning, en Lamont 54%.
Fyrir þá sem hafa áhuga á Lieberman og Lamont bendi ég á þessa NYT grein. Lamont hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa lítið fram að færa annað en að vera á móti Lieberman, og vilja draga bandaríkjaher frá Írak. Sjá stutta, en fyndinn póst um það á þessum blogg.
Og fyrir þá sem vilja kynnast Lamont betur er bennt á þetta viðtal Steven Colbert við Lamont. Lamont er alls ekki svo slæmur...
Það er fyndnast við þessa kosningabáráttu Lieberman og Lamont að Republikanar hafa hlaupið upp til handa og fóta til að lýsa yfir stuðningi við Lieberman! Eins og það myndi bæta ímynd hans í augum vinstrisinnaðra kjósenda í Connecticut?! En það segir sennilega meira en flest um hversu örvæntingarfullir republikanar eru orðnir, að þeir telja sig þurfa að verja hægrisinnaða demokrata! Sjá Media Matters um Republikana og Lamont-Lieberman.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.9.2006 kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 6.8.2006
Bush fer í frí...
Á sama tíma og Bush ákveður að fara í frí til Crawford Texas, kýs Blair að fresta sínu fríi. Þarf að segja meira um muninn á þessum mönnum? Þó vinstrimenn séu margir þeirrar skoðunar að það sé enginn munur á Blair og Bush - Blair sé ekkert annað en kjölturakki Bush, sem aftur sé strengjabrúða Rove og Cheney - er þó sá munur á þeim tveimur að Blair mætir allavegana í vinnuna og reynir að sinna skyldum sínum...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 5.8.2006
36% Bandaríkjamanna trúa á 9/11 samsæriskenningar
Samkvæmt könnun á vegum Ohio háskóla eru 36% Bandaríkjamanna þeirrar skoðunar að það sé líklegt, eða mjög líklegt að ríkisstjórn Bandaríkjanna hafi verið á bak við eða verið viðriðin 9/11. Samsæriskenningar um 9/11 eru þá orðnar næstum jafn vinsælar og samsæriskenningar um morðið á JFK!
Thirty-six percent of respondents overall said it is "very likely" or "somewhat likely" that federal officials either participated in the attacks on the World Trade Center and the Pentagon or took no action to stop them "because they wanted the United States to go to war in the Middle East."
16% Bandaríkjamanna trúa því að The World Trade Center hafi hrunið vegna þess að leyniþjónustan hafi komið fyrir sprengiefni í turnunum - og að farðþegaflugvélarnar hafi ekki haft neitt að segja og 12% telja að það hafi ekki verið flugvél, heldur flugskeyti, sem lenti á Pentagon.
Það sem er merkilegt við þessar tölur er ekki að það sé fólk sem trúi á samsæriskenningar - það er líka fullt af fólki sem trúir á andalækningar, drauga og að geimverur ræni fólki í Kansas til að gera á þeim tilraunir. Það er mun skynsamlegra að trúa því að CIA hafi verið á bak við 9/11 en t.d. að guð hafi skapað heiminn fyrir 6000 árum - en nærri helmingur Bandaríkjamanna trúir sköpunarsögu biblíunnar. Fólk trúir allskonar rugli og vitleysu - það eru varla fréttir!
Það sem er áhugavert við þessar tölur er að samsæriskenningar um 9/11 urðu ekki vinsælar fyrr en á seinasta ári. Fram að því voru það bara einstaka rugludallar sem trúðu því að bandaríkjastjórn hafi verið viðriðin árásirnar. Ástæðan virðist vera sú að á seinasta ári hefur bandarískur almenningur verið að missa trú á Bushstjórninni - almenningur trúði því nefnilega að Saddam Hussein ætti gereyðingarvop - eins ótrúlegt og það hljómar, þá trúði fólk því í alvörunni! Þegar það svo kom í ljós að rikisstjórnin hefði logið þessu gereyðingarvopnarugli, og þegar það kom í ljós að stríðið allt væri eitt allsherjar klúður, virðist fólk hafa verið að missa trúna á ríkisstjórninni almennt.
Það sem ég skil reyndar ekki við þessar samsæriskenningar er að Íraksstríðið hefur sannað svo ekki verði um villst að Busstjórnin er fullkomlega vanhæf - hvernig er hægt að ímynda sér að jafn getulausir trúðar hafi getað skipulagt 9/11, og látið líta svo út að það væru Saudi Arabískir hryðjuverkamenn á bak við þær? Og þess utan - ef planið var allan tímann að nota 9/11 sem afsökun fyrir innrásinni í Írak - af hverju þá ekki að láta flugræningjana vera Íraka? Ekki að það fólk sem trúir á samsæriskenningar hefur ábyggilega skýringar á þessu líka - ef einhver af lesendum FreedomFries hefur skoðanir á þessu lýsi ég eftir þeim!
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á Raptureready.com er listi yfir þá menn sem teljast líklegir til að vera antíkristur, Bill Gates er efstur á blaði, en Gaddafi, Gorbachev, Putin og auðvitað Kofi Annan komast á listann. En svo virðist sem þeir telji sérstaklega líklegt að satan birtist sem einhverskonar aðalsmaður:
King Jaun Carlos wins the most votes in the bloodline category. Some folks say he's related to early Roman Emperors.
Mér fannst samt athyglisverðast að George Bush hafi komist á lista:
George Bush made the list simply because he is the current acting U.S. President
En þó það sé gaman að velta því fyrir sér hvaða heimsleiðtogi sé líklegastur til að leiða hersveitir helvítis, er þó mun skemmtilegra að skoða hverskonar híbýli guð skaffi manni þegar kemur til himna. Á síðunni er nefnilega tengill
"Mansions in heaven, Find out what type mansion you should expect to be given"
Sem leiðir á síðu með ljósmyndum af mismunandi villum og húsum, ásamt lýsingum á því hverjir geti átt von á að fá að flyta í viðkomandi hús, t.d.:
The God Fearing Mansion: The Bible repeatedly declares to us that God will, someday, pointedly ask each of us to give an account of the good deeds we've accomplished in our life on earth. This type of mansion is for people that wisely acted on God's warning.
Merkilegast er samt "The Average Christian Mansion" (Sjá mynd að ofan)
The Average Christian Mansion: In heaven, even the average believer will enjoy living quarters that will be elegant by earthly standards.
Ég ætla rétt að vona að þessu húsi fylgi heitur pottur og sundlaug, þrír bílar, garðyrkjumaður og þjónar!
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.9.2006 kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 4.8.2006
The Rapture Index: Heimsendavísitalan
The Rapture Index mælir á 'vísindalegan' máta hversu líklegt það sé að Jesú sé á leiðinni til jarðar, ásamt herskörum engla til að leiða trúaða í heilögu stríði við gegn Satan... Núna stendur 'heimsendavísitalan' á 158, sem er víst nokkuð gott, skv heimasíðunni þýðir það nefnilega að heimsendir sé handan við hornið! (Hæst fór vísitalan í 182, skömmu eftir 9-11 2001) Hæst virðist vísitalan geta farið í 225, því hún er búin til úr 45 liðum, og hver þeirra getur fengið gildi milli 1 og 5.
Rapture Index of 85 and below: Slow prophetic activity
Rapture Index of 85 to 110: Moderate prophetic activity
Rapture Index of 110 to 145: Heavy prophetic activity
Rapture Index above 145: Fasten your seat belts
"Fasten your seatbelts"?! Ætli það breyti miklu hvort maður er með bílbeltin spennt, svona fyrst heimurinn er að fara að farast?
Það er stórskemmtilegt að skoða hvernig þessi vísitala er búin til, t.d. er hátt olíuverð talið benda til þess að heimsendir sé í nánd, svo er liður 22: "Ísrael", en um það segir "A terrorist group threatens Israel with chemical weapons", 5 fyrir þann lið. Og liðirnir 32 og 33, "Beast Government" og "Mark of the Beast", en þar segja höfundar vísitölunnar, "The possibility of the EU reforming into a smaller group of core nations has updated this category." og "The U.S. Patriot Act has failed to get enough votes for extension", en ég átta mig ekki á því hvort höfundi vísitölunnar þykja þetta vera góðar eða slæmar fréttir, en báðir liðirnir fá gildið 3. Ætli þetta hafi ekki þótt vondar fréttir?
Mér finnst að Bandaríska hagstofan ætti að koma sér upp svona vísitölu, en þá þarf eitthvað vísindalegri mælingar, t.d. fjölda engisprettna á ferkílómetra og fjölda froska sem fallið hafa af himnum.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 4.8.2006
Mannvinurinn Mel Gibson
Um daginn skrifaði ég um yfirlýsingagleði Mel Gibson og hárbeittar analýsur hans á orsökum þess hversu ófriðlegt er í heiminum - gyðingarnir eru á bak við það alltsaman - og síðan þá hefur eiginlega fátt annað verið eins mikið í umræðunni hérna vestra. Að vísu berast líka fréttir af því að það sé eitthvað fólk að deyja í Líbanon, og að Hezbollah haldi úti eldflaugaárásum, en það jafnast samt ekki á við Gibsonmálið.
Reyndar er það svo að þetta Mel Gibson mál allt er mjög merkilegt því það kemur upp á viðkvæmum tíma: Í fyrsta lagi er það að Ísrael og Mið-Austurlönd eru mikið í fréttunum, og það er auðveldara að tala um þessi vandamál, (sem vissulega hafa með gyðinga að gera) ef þau eru persónugerð. Meðalbandaríkjamaðurinn hefur nefnilega þá skoðun að vandamál Ísraelsríkis og rót þess eilífðarstríðs sem það land er í við öll nágrannaríki sín, hljóti að orsakast af gyðingahatri Araba. Fyrir vikið, held ég, eru andsemítísk ummæli einhvernveginn áhugaverðara umræðuefni en utanríkis og öryggispólitík.
Hitt er að þessi ummæli Gibson koma upp á mjög vandræðalegum tíma fyrir hægrimenn í Bandaríkjunum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Republikanaflokkurinn sé í vandræðum - en tilvistarkreppa bandarískra hægrimanna liggur mun dýpra en vandræði forsetans. Þegar Mel Gibson gerði 'The Passion' tóku kristnir hægrimenn af öllum gerðum Gibson í dýrlingatölu. Og vinsældir myndarinnar stóðu í beinu sambandi við, og byggðu að miklu leyti á, þeirri trúarbylgju sem gengið hefur yfir bandarískt samfélag á undanförnum árum.
En það voru ekki alveg allir jafn hrifnir af The Passion - fyrir utan að vera sadísk (Gibson virðist hafa mjög pervertískan áhuga á langdregnum ofbeldis og sársaukasenum - sbr Braveheart), þótti mönnum sem hún væri lítillega andsemítísk. Vinir Gibson í röðum kristinna hægrimanna blésu á allar slíkar ásakanir, Gibson væri góður kristinn drengur, og þeirra maður. Það er því sérstaklega erfitt fyrir þetta fólk að viðurkenna að kannski hafi gagnrýnendurnir haft á réttu að standa.
Það skýrir allavegana hversu viljugir hægrisinnaðir fréttaskýrendur hafa verið að koma Mel Gibson til bjargar!
Á undanförnum dögum hafa ekki minni spámenn en Bill O'Reilly og David Horowitz lýst yfir stuðningi við eða afsakað Gibson, eða ráðist á þá sem hafa leyft sér að gagnrýna hann. Á Fox voru O'Reilly og Geraldo Rivera að ræða málefni Gibson, og voru þeirrar skoðunar að aðalfréttin væri ekki sú hvað Gibson hefði sagt, heldur að fólk skyldi hafa áhuga á því. O'Reilly var ekki í nokkrum vafa um að ástæðan væri samsæri fjölmiðla:
O'REILLY: All right? They wallow in it. They can't get enough of it. They've got blood all over their mouth, these vampires, OK? They're in the media, these people. This is what they live for.
David Horowitz, í viðtali hjá Sean Hannity á Fox hafði hins vegar áhyggjur af því að Gibson nyti ekki þeirrar samúðar sem hann ætti skilið.
people deserve compassion when they are in this kind of trouble. ... As a Jew, I feel much more threatened by people like Jimmy Carter when Israel is facing genocidal enemies who have sworn to destroy it and kill the Jews, and Carter is out there, wagging his finger at the Israelis.
Horowitz er líka þeirrar skoðunar að æsingurinn yfir Gibson snúist líka um einhverskonar ofsóknir gegn kristnu fólki:
a lot of the people who are jumping all over Mel Gibson see him as some kind of a conservative or as a Christian. There's a lot of hatred of Christians in this country.
Ég er sammála Horowitz um að Gibson sé ekki 'some kind of a conservative or as a Christian' - því hann er fyrst og fremst 'some kind of crazy in the head', svo vitnað sé í annan stjórnmálaspeking, en það fer hins vegar ekki á milli mála að hægrimenn eins og O'Reilly gerðu úr Gibson einhverskonar heiðurs 'conservative and an Christian' og það er því skiljanlegt að fólki finnist það fyndið þegar það kemur í ljós að hann var bara galinn.
M
fim. 3.8.2006
Matsalir Bandaríkjaþings hættir að selja 'Freedom Fries'
Bandarískir þingmenn geta nú aftur pantað sér 'French Fries', í staðinn fyrir 'Freedom Fries'. Sömuleiðis er nú hægt að kaupa 'French toast', en ekki 'Freedom toast'. Það er reyndar mjög merkilegt að búið sé að breyta þessum nöfnum aftur. Forsagan er sú að í mars 2003 létu Bob Ney and Walter Jones breyta nöfnunum frönskum kartöflum í frelsiskartöflur, til að sýna fransmönnum í tvo heimana. En núna þykir republikönum semsagt að það sé búið að refsa frökkum nóg.
Það er frábær færsla um þetta á The Hill blog, sérstaklega þessi komment Nancy Pelosi um nafnabreytingarnar:
Clearly, this turn of events has cast our nation out of the frying pan and into the fire, said House Democratic Leader Nancy Pelosi. Considering the Republican Party has based its foreign policy and homeland security strategy on the naming of fast-food items, it is shocking that they would waffle on one of their most pressing agenda points.
M
fim. 3.8.2006
Pízza handa Ísraelsher - 'support the troops'
PizzaIDF.org býður bandaríkjamönnum upp á að sýna stuðning sinn við Ísraelsher í verki með því að panta pízzu og láta senda til hermanna á vígstöðvunum í Líbanon - allar "heimsendingar" eru gerðar með vitund og samstarfi Ísraelshers, en slagorð fyrirtækisins er "We are delivering to the Lebanese Border. And around Gaza"
Þetta er sannarlega merkilegur bisness! Hver segir svo að það séu bara hergagnaframleðiendur sem græða á stríðsrekstri? PizzaIDF (IDF = Israeli Defence Forces) segir á heimasíðu sinni
During the last four years we have delivered many thousands of pizza pies and other gifts to thousands of soldiers. It is hard to describe how happy they are to receive your "special treats" -- it goes well beyond getting a hot pizza late at night at a lonely post. It is as tremendous an experience for us to give them out on your behalf as it is for the soldiers to receive them. They love to know that people everywhere support and care for them
Our deliveries are coordinated with the security forces and pose no security risk.
Okkur óbreyttum borgurum, sem viljum sýna stuðning okkar í verki, gefst kostur á að panta pízzuveislu fyrir 5-90 hermenn, 90 manna veislan kostar litla 270 dollara. Allar pízzurnar eru Kosher. Fyrirtækið var stofnað 2002, og hefur víst verið að senda svöngum hermönnum pízzur síðan þá. Og hermennirnir eru voða þakklátir. Það er erfitt að skjóta óbreytta borgara, nei, ég meina hryðjuverkamenn, á fastandi maga...
On behalf of the soldiers of the IDF (Israel Defense Forces), we wish to thank the many, many people the world over who have sent Pizza, Burgers and a variety of other treats, and especially thank you to those who have sent pizza and encouraging messages of support and gratitude during the current campaign.
Ég á aeftir að athuga hvort pízzupantanir frá PizzaIDF séu frádráttarbærar frá skatti í Bandaríkjunum - ef ekki ættu vinir ísraels að krefjast þess, ef þetta er ekki mannúðaraðstoð þá veit ég ekki hvað er!
M.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 2.8.2006
Græningjar: handbendi afturhaldsaflanna
Ef Republikönum er legið á hálsi fyrir að þiggja peninga af vopnaframleiðendum og öðrum vondum stórkapítalistum, hvað finnst okkur þá um að Græningjar séu fjármagnaðir af Repúblikönum? Í Pennsylvaníu hafa græningjar þegið yfir 60.000 dollara frá stuðningsmönnum Rick Santorum, sem er án nokkurs vafa einn afturhaldssinaðasti leiðtogi Republikanaflokksins. Það sem meira er, Republikanar aðstoðuðu Græningja að safna undirskriftum til stuðnings því að frambjóðandi græningja fengi að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar - en frambjóðendur þurfa að skila inn undirskriftum frá 67.000 stuðningsmönnum. Meðlimir græningja í fylkinu eru rétt um 20.000, en þeim tókst að skila inn undirskriftum frá yfir 90.000 manns.
Samkvæmt Washington Post, og Hotline on Call, (og hér) er kosningabarátta Carl Romanelli, frambjóðanda Græningja alfarið fjármögnuð af Republikanaflokknum og Rick Santorum.
Það er sannarlega betra að vera á mála hjá handbendum stórfyrirtækja, en að vera á launum hjá stórfyrirtækjunum sjálfum? Nei, ég er eiginlega alveg steinhættur að skilja þetta... það er forvitnilegt að vita hvernig græningjum í Pennsylvaníu líði - hversu margir þeirra ætli muni kjósa Romanelli í komandi kosningum, og halda að þeir hafi hreina samvisku?
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)