Jólagjöfin í ár: GOP dagatalið

Pepperóni og sveppi... hvað fer vel með sveppum... kannski ólífur líka, nei annars, Rove hatar ólívur.. hvað vildi hann síðast? hvað heita þessir andstyggilegu íllalyktandi fiskar? Ansjósur?.jpg

Íllgjarnir liberal bloggarar í Bandaríkjunum hafa varla getað hamið gleði sína yfir þessu frábæra dgagatali Repúblíkanaflokksins. Sérstaka gleði vekur herra águst - glæsilegur og karlmannlegur, með tíugallona-hattinn! "The decider" sem herra mars er líka viðeigandi - Mars, guð stríðs og hernaðar; forsetinn situr íhugull að naga gleraugun, ábyggilega að tala við þjóðarleiðtoga og stjórnspekinga í símann, meðan hann horfir út í fjarskann, hugurinn reikar til Írak, áhyggjurnar og samúðin skín úr augunum, og reyndar barasta hverjum einasta andlistsdrætti.

Dagatalið kostar skitna 25 dollara, og samkvæmt heimasíðu repúblíkanaflokksins er dagatalið tilvalið til að sýna öllum, vinum og kunningjum, hversu mikið þú elskir forsetann.

M


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband