Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bannað að tala um Ron Paul á hægriblogginu Redstate

dr Paul og stjórnarskráin...Ron Paul er merkilegur stjórnmálamaður. Þó ekki væri nema vegna þess að hann er eini yfirlýsti, og raunverulegi, frjálshyggjumaðurinn í þingflokki Repúblíkana. Það er nefnilega ákveðinn misskilningur að Repúblíkanaflokkurinn sé þéttskipaður frjálshyggjumönnum. Repúblíkanar hafa vissulega talað fyrir skattalækkunum og takmörkunum á reglum og reglugerðum og einkarekstri, en fyrir flesta þingmenn flokksins virðist sú frjálshyggja ekki rista dýpra.

Persónufrelsi og stjórnarskrárvarin réttindi almennings virðast til dæmis ekki skipta þingmenn Repúblíkana nokkru einasta máli. Mottó núverandi ríkisstjórnar virðist hafa verið að borgararnir þyrftu að fórna persónufrelsi sínu og stjórnarskrárvörðum réttindum svo vernda mætti frelsið.

"Frelsisvörnin" hjá Repúblíkanaflokknum hefur nefnilega aðallega snúist um að standa vörð um eigin völd, sérhagsmuni, og svo skefjalausa útþenslu ríkisvaldsins.

En það eru einstaka menn í Repúblíkanaflokknum sem líta öðru vísi á hugtakið "frelsi", og skilja að athafna-, eða fyrirtækjafrelsi er enskis virði ef stjónarskrárvörðum borgaralegum réttindum hefur verið fórnað. Eini forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins sem hefur talað um mikilvægi stjórnarskrár Bandaríkjanna er Ron Paul.

Þannig hafa stjórnmálaskýrendur og hægrisinnaðir bloggarar hafa nánast allir sem einn afksrifað Ron Paul sem rugludall og ómerkjung. Í nýlegri könnun meðal hægrisinnaðra bloggara um hverjir væru óvinsælustu hægrimenn Bandaríkjanna kom í ljós að Ron Paul er langasamlega óvinsælastur. Fasistanornin Ann Coulter lenti í áttunda sæti, ásamt James Dobson.

Það eina sem Paul hefur unnið sér til saka er að vera á móti stríðinu í Írak, útþenslu ríkisvaldsins á valdatíð Bush og öryggislögregluríki því sem Bush stjórnin hefur reynt að koma á í krafti the USA Patriot act. Semsagt: Repúblíkanar, sem þykjast öðru jöfnu sérstaklega útskipaðir verðir "frelsisins" og takmarkaðs ríkisvalds hatast við eina frambjóðanda flokksins sem hefur talað fyrir frelsi og takmörkun ríkisvaldsins...

Nýjasti kaflinn í þessari ömurðarsögu er ákvörðun hægribloggsins RedState um að banna umræðu um Ron Paul!

Afganginn má lesa Hér


Huckabee - eini íhaldsmaðurinn í framboði

HuckabeeÞað eru bara tveir menn í framboði fyrir Repúblíkanaflokkinn sem ég get viðurkennt að virðist vera alvöru stjórnmálamenn, sjálfum sér samkvæmir og með alvöru sannfæringu, eða í það minnsta einhverskonar vott af hugsjónum. Það eru frjálshyggjumaðurinn Ron Paul og íhaldsmaðurinn Mike Huckabee. Huckabee, sem er fylkisstjóri frá Arkansas (hann er meira að segja frá sama bæ og Bill Clinton - Little Rock!), er vígður prestur og babtisti. Hann hefur verið giftur sömu konunni allt sitt líf, ólíkt flestum öðrum frambjóðendum Repúblíkna sem eru allir annað hvort raðframhjáhaldarar eða hafa komið sér upp "trophy wifes" og það eru engin myndbönd af honum að sprella í kvenmannsfötum.

Það sem meira er, Huckabee hefur ekki skipt um skoðanir á viðkvæmum málum, ólíkt Romney, Giuliani og Thompson, sem voru allir mjög frjálslyndir þar til þeir fóru að sækjast eftir tilnefningu Repúblíkanaflokksins. Þeir félagar hafa allir lýst sig fylgjandi kvenréttindum, rétti kvenna til fóstureyðinga og réttindum samkynhneigra, og Giuliani barðist gegn NRA meðan hann var borgarstjóri NY. Þá sækja hvorki Romney né Thompson kirkju og það er vafamál hvort Romney geti talist kristinn.

Stjórnmálaskýrendur og bloggarar eru búnir að vera að tala um Huckabee í langan tíma, og hann hefur verið tíður gestur í "late night" umræðuþáttum. Viðhorf flestra fréttaskýrenda virðist vera að það sé skrýtið að Huckabee nyti ekki meiri stuðnings, sérstaklega í ljósi þess að íhaldssamir og "kristnir" repúblíkanar virðast ósáttir við aðra frambjóðendur flokksins.

En nú lítur út fyrir að kjósendur Repúblíkana séu loksins að veita Huckabee athygli - því samkvæmt nýjustu könnun á viðhorfum kjósenda í Iowa, sem er mikilvægt prófkjörsfylki, er Huckabee ásamt Fred Thompson annar vinsælasti frambjóðandi Repúblíkana. Mitt Romney er með sjö prósentustiga forystu á þá félaga. Og stjórnmálaskýrendur telja að Huckabee geti verið á siglingu enn ofar:

Huckabee's been doing right what Thompson's been doing wrong. He's working really hard. He's extremely personable. He likes to talk to people. And on paper, in terms of that core constituency among Republicans in Iowa, he ought to be doing well. He's caught in that classic vicious circle: he doesn't get a lot of campaign funding and media attention because people don't think he's electible. But people don't think he's electible because he's not getting much funding and media attention

Lesa afganginn HÉR


Hverjir styðja stríðið í Írak? Ílla upplýstir einfeldningar!

get-a-brain-moransAuðvitað eru ekki allir stuðningsmenn stríðsins í Írak einhverskonar fífl. Það er t.d. hægt að styðja áframhaldandi veru Bandaríkjanna á þeim forsendum að stríðið "sé að vinnast" og að brotthvarf Bandaríkjahers muni bara gera ástandið verra. Það má vel vera. Ég held reyndar að stór hluti stuðningsmanna stríðsins sé fólk sem er ekki tilbúið til að viðurkenna að það hafi haft á röngu að standa 2003, og sé enn þann dag í dag að reyna að réttlæta fyrir sjálfu sér og öðrum að það hafi, einhverra hluta vegna, látið blekkjast til að styðja einhverja misheppnuðasta utanríkisfíaskói allra tíma.

En mikill meirihluti bandarískra kjósenda er engu að síður búinn að fá sig fullsaddan af þessu stríði. Samkvæmt tölum Galup frá í vor frá í vor telja einvörðungu 42% að rétt hafi verið að gera innrás í Írak 2003, og 58% töldu að kalla ætti allt herlið heim tafarlaust eða fyrir næsta vor. Skoðanir almennings á Írak hafa lítið sem ekkert breyst síðan þá, t.d. hafði sólskinsskýrsla Patraeusar engin áhrif á almenningsálitið.

En það er enn heilmikið af fólki í Bandaríkjunum sem styður stríðið, og er þeirrar skoðunar að það hafi verið góð hugmynd. Það er því forvitnilegt að reyna að grafast fyrir um hvaða skoðanir þetta fólk hefur á Íraksstríðinu og utanríkismálum.

Það óhugnanlega er að stór hluti þessa fólks virðist hafa alvarlegar ranghugmyndir um heiminn sem það býr í. Janet Elder, sem er skoðanakannaritstjóri The New York Times:

Afganginn má lesa HÉR


Öldungadeildarþingmaðurinn Craig fer á klósettið til að nota klósettið, ekki til að dónast...

Það virðast flestir sammála um að viðtal Matt Lauer við Larry Craig á NBC í gær hafi verið hálf óþægilegt. Craig og frú sátu hlið við hlið í sófanum í stofunni heima hjá sér meðan Lauer bar upp hverja söguna á fætur annarri, því ásakanir um samkynhneigð Craig ná langt aftur í tímann. Craig hefur meira að segja áður verið sakaður um að leita á karlmenn á almenningssalernum. En Craig og frú tókst nokkuð vel að láta líta út sem þau væru hinir huggulegustu heldriborgarar í notalegum silkisófa, umkringd fjölskylduljósmyndum og borgaralegum skrautmunum. Eftirfarandi eru nokkur myndskeið úr viðtalinu:

"I go to bathrooms to use bathrooms"... Mikil ósköp.

Í sjálfu sér var ekkert á viðtalinu að græða. Craig viðurkenndi ekkert, heldur hélt fast við fyrri sögu, og Lauer virti þá ákvörðun kurteislega. Sjónvarpskrítíker Washington Post Tom Shales var því hundóánægður:

Afganginn má lesa HÉR


Klósettdóninn Larry Craig á NBC í kvöld

Fyrr í haust skrifaði ég nokkrar færslur um ævintýri öldungardeildarþingmannsins og klósettdónans geðþekka Larry Craig. (Hér, hér, hér, hér, hér, hér og hér!) Craig var, eins og frægt er orðið, handtekinn fyrir að reyna að stofna til kynferðislegra skyndikynna við lögreglumann á almenningssalerni á flugvellinum í Minneapolis/St Paul.

Að yfirheyrslu lokinni ákvað Craig að játa og greiða smávægilega sekt. Hann ákvað hins vegar að segja engum frá uppákomunni - ekki kjósendum eða kollegum sínum í Washington. Ekki einu sinni frú Craig. Sú hegðun var í góðu samræmi við augljósa sjúkdómsgreiningu á Craig, sem inniskápuðum og kynferðislega frústreruðum miðaldra manni sem vildi halda tvöföldu lífi sínu leyndu frá umheiminum.

En það er erfitt að halda því leyndu að maður sé handtekinn, sérstaklega ef maður er þingmaður! Og bloggarar, grínarar og blaðamenn skemmtu sér því konnglega við að gera grín að aumingja Craig þegar upp komst um salernisvenjur hans. Svo við vitnum í Craig sjálfan, "bad boy, a naughty boy... probably even a nasty, bad, naughty boy..."

Lesa afganginn HÉR, m.a. þrjú tónlistarmyndbönd um ævintýri Craig...


Brúrarhrunið í Mpls vekur spurningar um slælegt viðhald á samgöngumannvirkjum, öðrum innviðum

Hrunið á I-35W brúnni yfir Mississippi í gærkvöld hefur verið eitt helsta umræðuefni bandarískra fjölmiðla í dag, enda var það með skelfilegri slysum undanfarin ár, og ekki á hverjum degi sem mikilvæg samgöngumannvirki hrynja, að því er virðist án nokkurrar viðvörunar. Þetta slys hefur líka orðið til þess að minna fólk á hversu mikilvægt það er að hið opinbera sinni skyldum sínum og viðhaldi innviðum samfélagsins, frekar en að eyða tíma, orku og peningum í að eltast við fáránlega og einskisnýta hluti. CNN:

WASHINGTON (CNN) — Senate Majority Leader Harry Reid, D-Nevada, said Thursday that the Minneapolis bridge collapse should be a “wake-up call” for the country.

We have all over the country crumbling infrastructure — highways, bridges, dams — and we really need to take a hard look at this,” said Reid.

In addition to being the “right thing to do,” Reid also said that repairing infrastructure was “good for America.” “For every billion dollars we spend in our crumbling infrastructure, 47,000 high-paying jobs are created,” added Reid.

The National Transportation Safety Board is sending a team to Minneapolis to investigate the cause of the bridge collapse.

AFP fréttastofan vitnar í The American Society of Civil Engineers sem segir að á undanförnum árum hafi viðhaldi á samgöngumannvirkjum, stíflum, flóðgörðum og öðrum mikilvægum innviðum verið stórlega vanrækt:

The American Society of Civil Engineers warned in a report two years ago that between 2000 and 2003, more than 27 percent of the nation's almost 600,000 bridges were rated as structurally deficient or functionally obsolete. ... 

Afgangurinn af færslunni (og tvær aðrar færslur, um þetta mál) er á nýjum heimkynnum Freedomfries á Eyjunni.is.


mbl.is Fleiri lík hafa fundist í Minneapolis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I-35 W yfir Mississippifljót í miðbæ Minneapolis hrynur

Interstate Highway 35 W, sem liggur frá Laredo í Texas alla leið til Duluth í Minesota. (Bandaríska þjóðvegakerfið virkar þannig að allar hraðbrautir með oddatölum eru norður-suður og allar hraðbrautir með sléttum tölum eru austur-vestur). 35 W er ein allra mikilvægasta umferðaræð Minneapolis, og brúin sem hrundi ein fjölfarnasta brú borgarinnar. 35 W liggur vestan við háskólasvæði Minesotaháskóla, U of M, enda var hálft háskólasamfélagið komið út á götu til að fylgjast með björgunaraðgerðum. Sömu leiðis var allt lögreglulið borgarinnar, björgunarsveitir og slökkviliðsmenn á vettvangi. Lögreglan hafði lokað öllum götum í nágrenninu, og var hægt og bítandi að smala áhorfendum lengra frá slysstað.

Nokkrir framtakssamir háskólanemar höfðu borið út vatnstanka og voru að bjóða viðstöddum vatn að drekka - enda hitinn og rakinn nærri óbærilegur. Hverfið sitt hvorum megin við hraðbrautina, er aðallega, ef ekki alfarið, byggt háskólanemum.

Almenningur var beðinn um að nota ekki þráðlausa síma, því álagið á símkerfið var víst það mikið fyrst eftir slysið að símtöl komust ekki í gegn - mér sýndist reyndar nokkurnveginn önnur hver manneskja á slysstað vera að tala í símann, mér heyrðist allir vera að taka þátt í sama símtalinu: “Yeah, the I-35, it just collapsed, Im right here on campus...”. Viðstaddir virtust ekki trúa eigin augum, því brúin er í um 20 metra hæð yfir ánni, hálfur kílómetri að lengd, og virðist hafa hrunið öll í heild sinni ofan í ána. Við komumst að göngubrú sem liggur milli Austur og Vesturbakka Háskólans, þaðan sem var gott útsýni yfir slysstað - leifar af brúnni lágu í vatninu, nokkrir bílar voru sýnilegir og nokkrir í vibót lágu innan um brotajárn og steinsteypubrot á sitt hvorum bakkanum. Fjöldinn allur af lögreglu og björgunarbátum voru að ferja björgunarsveitir upp að brúni, eða voru að sigla í hringi á ánni.

Afgangurinn á nýjum heimkynnum freedomfries á Eyjunni...


mbl.is Brú yfir Mississippi hrundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri vandræði fyrir forsetaframboð McCain: gay kynlífshneyksli í Flórída!

Bob Allen hálf eitthvað aumingjalegur á svipinnLögregla í Flórída hefur handtekið Robert nokkurn, "Bob" Allen, sem er þingmaður repúblíkana í fylkisþinginu og aðstoðarformaður kosningaskrifstofu Johm McCain í Flórída. Og vegna þess að "20 dollar Bob" er "family values" repúblíkani, og þar sem þetta er Flórída, eru sakirnar auðvitað opinber pervertaskapur, hórerí og samkynhneigð!

Að vísu leggst Bob ekki á unga drengi, eins og aðrir frammámenn flokksins í fylkinu, samanber Mark "maf54" Foley, sem varð frægur í fyrrahaust fyrir að berjast fyrir fjölskyldugildum um leið og hann sigldi um veraldarrörin sendandi dónaleg tölvu- og tekstaskeyti táningsdrengja sem hann var að tæla til fylgilags við sig. (Sjá færslur mínar um Foley hér, hér, hér, hérhér hér hér hér... og hér- Foley og aumingja, og aulalegar tilraunir repúblíkanaflokksins og Fox News til að sverja Foley af sér voru nærri óþrjótandi uppspretta bloggfærslna!)

Bob Allen virðist hafa valið sér mun hefbundnari kynlífsskandal. Allen, sem er 48 ára gamall og giftur, vakti athygli lögreglumanna sem voru að vakta almenningsgarð í gærkvöld í Titusville í Flórída.

Afgangurinn á nýjum heimkynnum Freedomfries á Eyjunni. (Þer er líka ábending frá Friðjóni - ég hafði misst af alveg stórkostlegum skandal í Norður Karólínu: Þingmaður repúblíkana, David Allen: "exposed himself in front of a female employee and chased her around the room yelling "Suck it, baby, suck it."... JEI fyrir hefðbundnum fjölskyldugildum!


Chertoff mælir hryðjuverkaógnina í meltingarveginum?

Michael Chertoff, yfirmaður föðurlands-öryggisstofnunarinnar (Department of Homeland Security - hvernig á annars að þýða þetta fáránlega orð? Skrifstofa Fósturjarðarvarna? Kannski er það betra? Hvað segja lesendur?) hefur töluvert verið í fréttum undanfarna daga vegna þess að hann er með merkilean melitngarveg. Sjá upptöku af Countdown - Chertoff fyrst og Wesley Clark næst.

Chertoff sagði beinlínis að það væri engar haldbærar vísbendingar sem bentu til þess að Al Qaeda ætlaði að ráðast á Bandaríkin á næstu dögum, vikum eða mánuðum - en að hann væri með fiðring í maganum sem hann túlkaði sem forboða hryðjuverkaárása?

Þessar vangaveltur Chertoff um meltingartruflanir sínar hleyptu af stað allskonar vangaveltum í veraldarrörunum og sjónvarpssölum kapalsjónvarpsstöðva. Allra handa "armchair generals", miðaldra karluglur sem finnst gaman að tala stórkarlalega um stríð og "hryðjuverkaógnina" þóttust alveg sannfærðir um að Chertoff hefði mikið til síns máls - þeir hefðu jú horft á fréttir, og Al Qaeda er búið að vera mikið í fréttunum, svo eru demokratar að grafa undan "our resolve in the war on terror" ergó: Það er "increased activity" og "increased likelyhood of attacks". Umræðan á Hardball virtist fara út í vangaveltur um

Lesa afganginn á nýjum heimkynnum Freedomfries á Eyjunni


Landlæknir Bandaríkjanna má ekki tala um kynfræðslu eða stofnrumur, verður að nefna Bush minnst einu sinni á mínútu...

CarmonaÍ gær báru þrír fyrrverandi landlæknar bandaríkjanna báru vitni fyrir þingnenfd. Þeirra á meðal var Richard H. Carmona, sem var landlæknir Bush þar til fyrir skemstu. New York Times lýsir framburði Carmona:

Former Surgeon General Richard H. Carmona told a Congressional panel Tuesday that top Bush administration officials repeatedly tried to weaken or suppress important public health reports because of political considerations.

The administration, Dr. Carmona said, would not allow him to speak or issue reports about stem cells, emergency contraception, sex education, or prison, mental and global health issues. Top officials delayed for years and tried to “water down” a landmark report on secondhand smoke, he said. Released last year, the report concluded that even brief exposure to cigarette smoke could cause immediate harm. ...

He described attending a meeting of top officials in which the subject of global warming was discussed. The officials concluded that global warming was a liberal cause and dismissed it, he said. “And I said to myself, ‘I realize why I’ve been invited. They want me to discuss the science because they obviously don’t understand the science,’ ” he said. “I was never invited back.”

Semsagt: Carmona mátti ekki tala um mikilvæg heilbrigðismál: Hann mátti t.d. ekki útskýra fyrir þjóðinni hvernig stofnfrumurannsóknir fara fram eða í hverju þær felast, hann mátti ekki útskýra fyrir almenningi að tóaksreykingar væru skaðlegar, og hann mátti ekki útskýra fyrir öðrum repúblíkönum að gróðurhúsaáhrifin væru raunverulegt vandamál en ekki eitthvað sósíalístístk plott til að klekkja á heiðarlegum bissnessmönnum í Texas eða Dubai?

En það fyndnasta er samt eftir:

Lesa afganginn á nýjum heimkynnum Freedomfries á Eyjunni


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband