Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006
fim. 2.11.2006
Kerry og stupidtroops-gate
Í fyrradag reyndi John Kerry að segja brandara. Heimildir segja að brandarinn hafi átt að vera fyndinn, og hafi átt að vera um forsetann, en ekki heimsku hersins. Í staðinn hljómaði Kerry eins og leiðinlegur unglingaráðgjafi í félagsmiðstöð að minna börnin á skaðsemi tóbaks og þess að læra ekki heima:
You know, education -- if you make the most of it, you study hard and you do your homework, and you make an effort to be smart, you can do well. If you don't, you get stuck in Iraq.
Samkvæmt áræðanlegum heimildum átti brandarinn að hljóma þannig:
Do you know where you end up if you don't study, if you aren't smart, if you're intellectually lazy? You end up getting us stuck in a war in Iraq. Just ask President Bush.
Aðeins fyndnara. En af því að demokratar eru allir ílla innrættir og hata Bandaríkin, hlógu viðstaddir. Fyrir vikið fattaði Kerry ekki alveg strax að þetta var alls ekki eins fyndið og til stóð, og að repúblíkanaflokkurinn, eins og hann leggur sig, hafi setið heima og beðið eftir tækifæri eins og þessu, einhverju, bara einhverju, sem þeir gætu notað til þess að vera í sókn. "Brandari" Kerry hefur nefnilega gert þeim kleift að mæta í sjónvarpssali og vera allir ægilega móðgaðir, á "the moral high ground" og þar fram eftir götunum.
Á Fox News lýsti John Boehner, sem er House Majority Leader, því yfir að ef Kerry bæðist ekki afsökunar á brandaranum myndi hann "berja hann til dauða"!
If he is not going to apologize, we are going to beat him to death until he does
Og Tony Snow hefur um fátt annað talað. Snow margendurtók kröfu Hvíta Hússins að Kerry tæki ummælin til baka og bæðist afsökunar - jafnvel þó Kerry hefði bæði beðist afsökunar munnlega og skriflega, og þó allar fréttastofur væru búnar að flytja fréttir af afsökunarbeiðninni.
Afsökunarbeiðni Kerry lítur þannig út:
As a combat veteran, I want to make it clear to anyone in uniform and to their loved ones: my poorly stated joke at a rally was not about, and never intended to refer to any troop.
I sincerely regret that my words were misinterpreted to wrongly imply anything negative about those in uniform, and I personally apologize to any service member, family member, or American who was offended.
It is clear the Republican Party would rather talk about anything but their failed security policy. I dont want my verbal slip to be a diversion from the real issues. I will continue to fight for a change of course to provide real security for our country, and a winning strategy for our troops.
Það sem er athyglisvert við afsökunarbeiðnina og brandarann er hversu mikla athygli brandarinn fékk. Auðvitað eiga fjölmiðlar að veita ósmekklegum athugasemdum Demokrata athygli - ekkert síður en þeir eiga að veita ósmekklegum athugasemdum Repúblíkana athygli. Ummæli Rush Limbaugh um Michael J Fox fengu t.d. talsverða athygli. Og það er líka skiljanlegt að fjölmiðlar hafi meiri áhuga á ummælum fyrrverandi forsetaframbjóðenda og öldungadeildarþingmanna en ómerkjunga eins og Rush Limbaugh. Það er því kannski ekkert óeðlilegt að Kerry sé í öllum fjölmiðlum.
En það sem ræður samt mestu um alla þá athygli sem ummælli Kerry hafa fengið er að "brandarinn" var var eins og hann hefði verið samin af hugmyndasmiðum Repúblíkanaflokksins: hann var klæðskerasniðin fyrir áróðursmaskínu flokksins sem hamrar á því að Demokratar séu 1) á móti hernum - ekki bara stofnuninni, heldur "the men and women in uniform", 2) elítístar sem fyrirlíta ómenntað og "venjulegt" fólk - "the hard working people of the heartland" 3) repúblíkanaflokkurinn sé einhvernveginn "ábyrgari" en demokratar þegar það kemur að utanríkismálum. Pat Buchanan mætti til MSNBC til að ræða skopskyn Kerry:
I think they realized the impact something like this could have distracting attention, focusing in on, if you will, the antimilitary, you know, bias that is deeply ingrained in some baby boomers, not this generation and certainly not Jack Kennedy's, but some of the baby boomers from the 60s and 70s. They seem to be constantly contemptuous not only of the Vietnam War but of the guys who went over there and fought it.
Joe Scarborough svaraði þessari athugasemd nokkru síðar, "it does come down to elitism, doesn't it?" og Monica Crowley, sem er einhverskonar stjórnmálaskýrandi hjá MSNBC bætti við:
I think Kerry's comments remind the American people, number one, how lucky we were that he was not elected president two years ago, but also, as Mike and Pat were pointing out, the fact that the Republicans still remain, after 60 years of the Cold War and in to this war on terror, the Republicans remain the grown-ups, the responsible ones on national security.
Það segir hins vegar margt um Repúblíkanaflokkinn að þetta skuli vera það eina sem þeir hafa til að "rally the base" rétt viku fyrir kosningar, eftir að hafa setið við völd í sex ár. Það er eftir að sjá hvort kjósendur sjá muninn á einum mislukkuðum brandara og sex árum af fullkomlega misheppnaðri utanríkispólítík. Það er líka athyglisvert að í huga Buchanan og repúblíkana eru orð mikilvægari en gjörðir. Repúblíkanaflokkurinn hefur með gjörðum sínum sýnt og sannað að hann er allt annað en ábyrgur.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 1.11.2006
Repúblíkanaflokkurinn teflir ekki fram einum, heldur tveimur mönnum sem eru sakaðir um að reyna að kyrkja konur!
Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég um Don Sherwood, "the Pennsylvania Strangler", en Sherwood á nú í stökustu vandræðum vegna þess að upp komst að fyrrverandi hjákona hans kærði hann fyrir að hafa reynt að kyrkja sig. Sherwood birtist svo í sjónvarpsauglýsingu þar sem hann grátbað kjósendur að fyrirgefa sér að hafa brugðist trausti þeirra, því hann væri nú samt góður fjölskyldumaður, svona fyrir utan að hafa áhuga á framjáhaldi og ofbeldi.
En nú kemur í ljós að Sherwood er ekki eini þingmaður Repúblíkana sem er ásakaður um að kyrkja konur. John Sweeney, einn þingmanna flokksins fyrir New York fylki, hefur nefnilega líka lent í útistöðum við lögin eftir að hafa verið óþarflega harðhentur. Að vísu er hann meiri fjölskyldumaður en Sherwood - Sweeney fannst nefnilega rétt að halda ofbeldinu innan fjölskyldunnar. Það er hægt að lesa lögregluskýrsluna hér. Samkvæmt The Albany Times Union var lögreglan kölluð heim til Sweeney eftir að kvenmaður hringdi í 911:
The wife of U.S. Rep. John Sweeney called police last December to complain her husband was "knocking her around'' during a late-night argument at the couple's home, according to a document obtained last week by the Times Union. ...
Gaia M. Sweeney, 36, told a trooper that her husband had grabbed her by the neck and was pushing her around the house, according to the document
En svo róaðist frú Sweeney eitthvað og sagði lögreglunni að þetta hefði nú sennilega bara verið einhverskonar leikur, eða grín, þó hún hefði ekki fattað það meðan á stóð. John væri bæði skapheitur og ástríðufullur, en hinn indælasti maður... Kosningaskrifstofa Sweeney, sem er mönnuð fólki sem ekki kann stafsetningu, var líka fljót að bjóða upp á sína eigin skýringu:
"This barley (sic) legible document that is currently being circulated is a piece of campaign propaganda in the continued smear campaign against Congressman John Sweeney and his family. It is not authentic. It is false and it is a concoction by our opposition.''
En þó Sweeney segi skýrsluna vera einhverskonar kosningaáróður staðfestir lögreglan innihald hennar. Sweeney er vel þekktur meðal repúblíkana í New York, og hefur fram til þessa verið frekar vel liðinn. Hann er meira að segja svo vel liðinn og þykir svo mikill stuðbolti að hann mætir óboðinn í partý hjá tæplega tvítugum háskólanemum þar sem hann heldur uppi fjörinu! Í Apríl varð nefnilega uppi fótur og fit þegar Sweeney, sem er um fertugt, mætti áberandi drukkinn í "frat partý" þar sem hann fór að "ræða stjórnmál" við unglingana. Albany Times Union talaði við gesti sem lýstu þingmanninum:
"[Sweeney was] acting openly intoxicated", "very loud and cursing," og "slurring his words while trying to discuss policy with the students". "If anyone from his district was there, they wouldnt vote for him"
Ljósmyndi að ofan er af Sweeny í góðum gír. Skrifstofa hans gaf svo út eftirfarandi yfirlýsingu til að útskýra hvað maðurinn hefði verið að gera:
"As a committed representative of the people throughout the area where he lives and works, he enjoyed the discussion he shared with the students from Union College. (Sweeney) was impressed with the energy and enthusiasm displayed by the students - particularly on a Friday evening."
Sweeney er augljóslega hinn yndislegasti maður.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 1.11.2006
Móðursýkinni aflýst: betra að tölvunörd ákveði útkomu kosninganna en ílla- og óupplýstir kjósendur
Dilbert Blog bendir okkur hýsterískum* lýðræðissinnum á að við ættum að vera ánægð með að atkvæði skrílsins telji ekki:
Statistically speaking, any hacker who is skilled enough to rig the elections will also be smart enough to select politicians that believe in . . . oh, lets say for example, science. Compare that to the current method where big money interests buy political ads that confuse snake-dancing simpletons until they vote for the guy who scares them the least. Then during the period between the election and the impending Rapture, that traditionally elected President will get busy protecting the lives of stem cells while finding creative ways to blow the living crap out of anything that has the audacity to grow up and turn brownish.
Eins og Dilbert bendir svo á er mikilvægast að kjósendur hafi það á tilfinningunni að útkoma kosninganna sé réttlát, og endurspegli vilja kjósenda. Og ég hef á tilfinningunni að almenningi finnist vilji tölvunörda sem brjótast inní kosningavélar ekki endurspegla vilja almennings, hvort sem tölvunördin, eða vinnuveitendur þeirra, séu greindari en meðalkjósandinn.
M
*Ég hef aldrei áttað mig á því hvernig maður á að skrifa þetta orð á Íslensku. Einhvernveginn finnst mér að "höísterískur" líti ekki nógu vel út, þó það hljómi betur en "hýsterískur".