Rótarýklúbbar og hryðjuverkamenn

Á Slate um daginn var skemmtileg grein um ótta Jíhadista við Rótarýklúbba. Í 17 grein stonfpappíra Hamas kemur meðal annars fram:

Therefore, you can see [the enemies] making consistent efforts by way of publicity and movies, curriculi of education and culture, using as their intermediaries their craftsmen who are part of the various Zionist Organizations which take on all sorts of names and shapes such as: the Free Masons, Rotary Clubs, gangs of spies and the like. All of them are nests of saboteurs and sabotage.

Og í upplýsingariti Al Qaida, sem ber þann virðulega titil "Military studies in the Jihad against the Tyrants" kemur eftirfarandi fram:

After the fall of our orthodox caliphates on March 3, 1924. ... Colonialism and its followers, the apostate rulers, then started to openly erect crusader centers, societies, and organizations like Masonic Lodges, Lions and Rotary Clubs.

Að Rótarý séu zionísk samsærishreiður gegn Íslam eru nýjar fréttir. Ég hef komið á Rótarýfundi, en missti af því þegar lesið var úr gerðarbókum öldunganna...

Eins og bent er á Samizdata blogginu fá svona fréttir mann til að efast um að stríð sé rétta viðbragðið við hryðjuverkamönnum, því lyfjagjöf væri sennilega eðlilegri.

Auðvitað er eðlilegt viðbragð við svona fréttum að hrista höfuðið. Þó það komi manni ekkert sérstaklega á óvart að Al Qaida og Hamas trúi því að Rótarýklúbbar séu hættulegir óvinir - það er í stíl við aðra veruleikafyrringu sem liðsmenn þessara Mið-Austurlensku hernaðarklúbba eru þekktir fyrir. Það sem er eiginlega fyndnast samt við þessa hræðslu alla, er að samsæriskenningar Islamistanna eru innfluttar frá Evrópu - hugmyndin um heimssamsæri Zionista, fullskapað með gerðarbókum og öllu, var samið af leyniþjónustu Rússakeisara - hugmyndin um heimssamsæri Frímúrara gegn röð og reglu kom fyrst fram í Englandi á átjándu öld, og hafa verið margnotaðar af Evrópskum ofstækismönnum og vitfyrringum. Mig minnir að þýsk stjórnvöld á millistríðsárunum hafi eitthvað fengist við að uppræta "heimssamsæri gyðinga og frímúrara"... 

Hamas hefur sennilega fattað að þetta ægilega samsæri sé mun stærra en áður var talið - rótarýklúbbarnir hafi gleymst fram að þessu?

M


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband