Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Það hefur ekki farið framhjá fréttamönnum og sumum bloggurum að Demokratar hafa tekið við völdum í Washington! Jibbííí! Nú verður þess skammt að bíða að þeir leysi öll vandamál Bandaríkjanna, hækki lágmarkslaun, bindi enda á spillingu og fjárlagahallann og endi stríðið í Írak! Jú, og svo þarf að dæma Bush fyrir landráð og embættisglöp svo varaforsetinn geti tekið við völdum!
Og allt þetta (eða eitthvað álíka metnaðarfullt) ætla demokratar að gera á fyrstu 100 klukkutímunum. Í einfeldni minni hélt ég alltaf að fyrstu 100 klukkutímarnir vísuðu annaðhvort til fyrtsu fjögurra daga þinghaldsins, eða að það væri bara einhverskonar orðatiltæki, og þýddi raunveruleaga "einhverntímann fyrir febrúarlok". En "fyrstu 100 klukkutímarnir" eru víst mun stærðfræðilegra hugtak. Demokratar eru nefnilega ekki bara metnaðarfullir, heldur kunna þeir líka að telja og eru alveg hreint meistarar í samlagningu! Washington Post útskýrir:
It sure sounds like a race against time. Democrats have given themselves a mere 100 hours to break the bonds between lobbyist and lawmaker, boost homeland security, raise the minimum wage, fund stem cell research, lower prescription drug prices, slash student loan interest rates and free the country from its dependence on international oil. ...
"We think we'll do it in less than a hundred hours," boasted incoming House Majority Leader Steny H. Hoyer (D-Md.) in a fit of bravado yesterday. "But," he added, "it all depends on how you're counting a hundred hours."
Og hvernig á að telja klukkutíma og mínútur ef þú ert demokrati?
To begin with, if you're a House Democrat, you don't start the clock running today, when the 110th Congress is sworn in and voting begins, or even tomorrow, when a package of measures reaches the floor to rein in fiscal profligacy. You fire the starting gun on Tuesday, six days into the 110th Congress. Now that's a head start.
Then you count only legislative hours, that is, the hours that the House is actually in session and voting. Forget the weekends, the night hours, Martin Luther King Day on Jan. 15, or, for that matter, the next day, when votes don't start until well after sundown.
If all goes according to plan, the House will get through its hundred-hour agenda in 15 days, or 360 hours, by standard definition.
Sem er nú samt helvíti gott - sérstaklega þegar haft er í huga að 109 löggjafarþing bandaríkjanna kom akkúrat engu í verk á 2 árum, enda voru þingmenn þess sannfærðir um að þeir væru líka í vinnunni þegar þeir voru heima hjá sér um helgar, sem samkvæmt þeirra stærðfræði voru fjórir dagar, og byrjuðu á hádegi á fimmtudögum og enduðu ekki fyrr en á þriðjudagsmorgnum...
M
Keith Ellison hefur sætt mikilli gagnrýni frá sumum íhaldssömum repúblíkönum sem finnst alls ekki nógu gott mál að hann skuli ekki vera kristinn, eins og þeir sjálfir. En í æsingi sínum yfir trúvillu Ellison hefur þeim yfirsést að það eru fleiri þingmenn Demokrata sem hata Jesú. Því um daginn rakst ég á bloggfærslu sem benti á að það hefur næstum enginn tekið eftir því, eða séð ástæðu til að gera veður út af því að tveir þingmenn 110 þingsins verði Búddistar!
Mazie K. Hirono, og Hank Johnson. Hiromo er þingmaður demokrata fyrir Hawai, og Johnson er þingmaður demokrata fyrir Georgíu. En þetta er ekki allt - því það er líka fullt af heiðingjum á þingi: Hawai á tvo þingmenn á Bandaríkjaþingi, (báðir eru demokratar) Hiromo og Neil Abercrombie. Abercrombie gefur upp að hann sé ekki meðlimur í neinu trúfélagi (þó wikipedia segi hann "protestant") - svo hvorugur þingmanna Hawai er kristinn. (Senatorar Hawaii eru að vísu kristnir).
Samkvæmt úttekt "Americans for Religious Liberty" á trúfélögum þingmanna 110 bandaríkjaþings eru fimm aðrir þingmenn gefa upp að þeir séu ekki í neinu trúfélagi:
- Mark Udall (D-CO) (skv. Wikipedia "christian")
- John Olver (D-MA) (skv. Wikipedia "unspecified")
- John Tierney (D-MA) (skv. Wikipedia "unspecified")
- Earl Blumenauer (D-OR) (skv. Wikipedia "unspecified")
- Tammy Baldwin (D-WI) (skv. Wikipedia "unspecified")
Demokratar hafa semsagt fyllt þingið af allskonar trúleysingjum og heiðingjum, og ljóst að Ellison er bara toppurinn á ísjakanum!
Þessi listi yfir trúfélög þingmanna er reyndar nokkuð forvitnilegur - t.d. kom mér á óvart hversu margir mormónar eru á þingi. En það meikar auðvitað fullkominn sens að allir þingmenn Utah séu mormónar. Listinn skýrir sig sjálfur, nema það eru nokkrar skamstafanir sem kannski eru ókunnuglegar, og Americans for Religious Liberty hafa ekki haft fyrir því að skýra þær:
- LDS: Latter Day Saints (Mormónar)
- AME: African Methodist Episcopal
- UCC: United Church of Christ
- SDA: Seventh Day Adventist
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 3.1.2007
Bandaríkja-hatandi Keith Ellison - þingmaður Minnesota snýr á guð-elskandi Goode og Prager
Um daginn minntist ég eitthvað stuttlega á Keith Ellison - sem er demokrati og nýjasti þingmaður Minnesotabúa. Ellison er þingmaður fyrir 5 kjördæmi Minnesota, sem þekur Minneapolis, og er fyrsti Múslmininn sem kjörinn er á Bandaríkjaþing. Þetta þykir mörgum alvarlegar fréttir, því það vita allir að múslimar eru hættulegir villimenn og hata bæði Bandaríkin og vestræna siðmenningu - og þó sérstaklega baby-jesús og kristna trú... En það sem virðist hafa valdið sjálfskipuðum varðmönnum vestrænnar menningar og kristinna gilda mestum áhyggjum var að Ellison ætlaði að nota Kóraninn þegar hann sver embættiseið á morgun.
Útvarpsmaðurinn Dennis Prager blés til orustu í þessu máli, og hélt því fram að með því að nota kóraninn, en ekki biblíuna, væri Ellison að grafa undan bandarískum gildum! Og Prager krafðist þess að lögreglan skærist í leikinn ef Ellison vogaði sér að koma með kóraninn í þingsali:
He should not be allowed to do so -- not because of any American hostility to the Koran, but because the act undermines American civilization. ... Insofar as a member of Congress taking an oath to serve America and uphold its values is concerned, America is interested in only one book, the Bible. If you are incapable of taking an oath on that book, don't serve in Congress.
Því Prager finnst semsagt að það eigi að banna öllum sem ekki geta svarið á biblíunni að sitja á þingi! En það er ekki bara að Ellison sé hættulegur biblíuhatari - uppátæki hans myndi verða alvarlegri árás á Bandaríkin en árásir Al Qaeda, 11 september 2001!
If Keith Ellison is allowed to change that, he will be doing more damage to the unity of America and to the value system that has formed this country than the terrorists of 9-11.
Svona snilldarmálflutningur er auðvitað aðdáunarverður. Það að halda á kóraninum við ljósmyndauppákomu er alvarlegra mál en hryðjuverkaárásirnar 2001, og Ellison þar með alvarlegri hryðjuverkamaður en Osama Bin Laden?
Eina vandamálið við þessi "rök" Prager er að þau stangast beinlínis á við stjórnarskrá Bandaríkjanna - og eru, eins og það heitir á góðu máli: "un-american". Samkvæmt stjórnarskránni er óheimilt að setja nein "religious tests" fyrir þá sem eiga að taka "public office" - og krafa Prager er augljóslega "a religious test", og það að vera þingmaður flokkast sennilega sem "public office". Eftir að Prager var bent á þetta dró hann aðeins í land, fór að tala um að það væri löng hefð fyrir biblíunni, og að Ellison væri að grafa undan þessari mikilvægu hefð. Skiptir þá engu að margir þingmenn hafa sleppt því að hafa biblíuna með sér, og þess í stað látið sér nægja að lyfta annarri hendi, en láta hina hvíla á pontunni, eða bara hanga með síðu. Jæja. Prager fannst Ellison samt vera að grafa undan Bandaríkjunum...
Eftir að Prager dró athygli jólasveina Repúblíkanaflokksins að þessu máli tóku 'trúaðir' íhaldsmenn að krefjast þess að þingið setti lög sem kvæðu á um að það yrði að nota biblíuna við þessa athöfn, og svo kom þingmaður Virginíu, Virgil Goode, og lýsti því yfir að ef ekki væru sett strangari lög um innflytjendur myndi þingið bráðum fyllast af múslimum - og benti máli sínu til sönnunar á Ellison. Að vísu er Ellison bandaríkjamaður, og sömuleiðis foreldrar hans. Ellison getur víst rekið ættir sínar allt aftur til 1746, sennilega lengra aftur en margir aðrir.
En Ellison fann leið til að snúa á Prager: Á morgun ætlar hann að nota kóran úr bókasafni Thomas Jefferson! Það er sennilega ekki hægt að finna þjóðernissinnaðari, eða meira patriotic Kóran í öllum Bandaríkjunum - og Jefferson var á sínum tíma einn af helstu talsmönnum trúfrelsis. Það setur Prager og aðra sem trúa því að allt fólk eigi að vera eins og það, og hatar fjölbreytileika mannkynssins meira en pestina, í dálítinn vanda.
"Keith is paying respect not only to the founding fathers" belief in religious freedom but the Constitution itself," said Ellison spokesman Rick Jauert.
Því Bandaríkin voru ekki byggð á biblíunni, heldur stjórnarskrá, lögum, réttlæti og frelsi... Ellison sýnir með þessu að það er hann, en ekki Prager og Goode sem standa nær "the founding fathers". Þetta útspil er reyndar svo klókt að meira að segja Ham, einn af bloggurum Townhall (sem er eitt helsta blogg íhaldssamra repúblíkana) játar að Ellison hafi sennilega snúið á Prager og félaga!
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2007 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fim. 28.12.2006
Bush viðurkennir að hann lesi dagblöð
Ég get ekki sagt að ég hafi lesið mikið af dagblöðum yfir jólin, eða yfirleitt fylgst með fréttum. Og þessvegna hef ég ekki heldur haft fyrir því að skrifa um uppátæki repúblíkanaflokksins eða tilvonandi þingmeirihluta. Það er samt af nógu af taka. T.d. æsingur Denis Prager yfir því að nýkjörinn þingmann okkar Minnesotabúa, Keith Ellison ætli að nota kóraninn þegar sver embættiseið og æsingur Virgil Goode yfir því að Ellison sé múslimi. En fyrir utan þetta Prager-Goode-Ellison mál allt virðast bandarískir pólítíkusar hafa haldið aftur af verstu vitleysunni yfir jólahátíðina. Jólin eru líka hátið fjölskyldutengdrar vitleysu, og síður hátið opinberra uppþota! (því ég tel dauðsföll auðvitað ekki til uppþota, þó þau séu kannski pólítískar fréttir.)
En það eru aðrir sem virðast hafa tekið upp á því að lesa dagblöð - New York Times birti á jóladag langa grein þar sem fjallað var um þá merkilegu uppljóstrun að forseti Bandaríkjanna, George W. Bush hafi hugsanlega lesið grein í dagblaði!
Flash! President Bush Says He Reads Papers
Is there hope for newspapers after all? Readers may be abandoning the printed versions, but over the last couple of years, at least one person seems to have started reading them, at least sometimes. He lives in the White House.
President Bush declared in 2003 that he did not read newspapers, but at his final news conference of the year last week, he casually mentioned that he had seen something in the paper that very day.
Asked for his reaction to word that Vice President Cheney would be called to testify in the C.I.A. leak case, the president allowed: I read it in the newspaper today, and its an interesting piece of news.
Þetta þykja auðvitað merkilegar fréttir, því forsetinn hefur ítrekað lýst því yfir að hann lesi ekki dagblöð. Í viðtali við Brit Hume á Fox fyrir þremur árum sagðist forsetinn stundum renna yfir fyrirsagnirnar:
I glance at the headlines just to kind of [get] a flavor for whats moving. I rarely read the stories, and get briefed by people who [...] probably read the news themselves.
Forsetinn reiðir sig nefnilega á fólk sem hann heldur að hafi sennilega fylgst með fréttum. En svo virðist sem þetta sé allt eitthvað málum blandið, því forsetafrúin þykist geta borið vitni um að forsetinn láti sér ekki nægja að lesa dagblöð, því hann drekki líka kaffi á morgnana. Tony Snow staðfestir þessar fréttir, en neitar að veita frekari upplýsingar:
Laura [Bush], said last week that she and her husband had read the morning papers for years. Weve done the same thing since we first got married, she told People magazine. We wake up in the morning and drink coffee and read the newspapers.
Tony Snow, the presidents press secretary, said in an interview he was certain Mr. Bush read the papers, though he was not sure which ones.
Þetta er allt hið undarlegasta mál - því forsetinn hefur áður lýst því yfir að hann fái heil fjögur dagblöð borin út í Hvíta Húsið, og að einstaka sinnum fletti hann þeim, þ.e. ef honum finnst einhver af fyrirsögnunum á forsíðunni áhugaverð:
I get the newspapers the New York Times, The Washington Times, The Washington Post and USA Today those are the four papers delivered ... I can scan a front page, and if there is a particular story of interest, I'll skim it.
M
sun. 24.12.2006
Jólasagan í ár: David Sedaris sem Crumpet the Elf
Ég held ég hafi fyrst heyrt í David Sedaris fyrir tveimur árum - og hann er sennilega einhver skemmtilegasti hversdagscommentator sem ég hef heyrt. Og í tilefni jólahátiðarinnar datt mér í hug að pósta þessum link á jólasögu um reynsly Sedaris af því þegar hann var jólaálfurinn "Crumpet" í Macys. Það er ekki hægt að tengja beint á upptökur á NPR - svo það þarf að smella á "Listen" takkann efst í meginmáli þessa glugga - "The original 1992 segment", sem er aðeins neðar á síðunni er reyndar örlítið lengri, og þessvegna pínulítið skemmtilegri.
Á einhvern furðulegan hátt tekst Sedaris að endurvekja trú manns á mannkynið og minna mann á hversu stórfenglega ídjódískst og fáránlegt það er. Sedaris stendur líka fyrir allt það besta sem Bandaríkin hafa upp á að bjóða - það er nefnilega ekki bara Rick Santorum og Michael Savage í Bandaríkjunum, heldur líka David Sedaris og Dan Savage!
Þessi jólasaga er sú fyrsta sem Sedaris flutti á NPR - National Public Radio - sem er nokkurskonar ríkisútvarp Bandaríkjanna, og er eitt allra besta útvarp sem ég hef hlustað á. Að vísu hlusta ég á MPR, Minnesota Public Radio, því það eru lókal public radio stöðvar í hverju fylki sem útvarpa efni NPR og framleiða líka sitt eigið útvarpsefni. Sedaris er tíður gestur í þættinum This American Life sem er framleiddur af Chicago Public Radio. Það er hægt að hlusta á This American Life hér. This American Life er sennilega allra skemmtilegasta innsýn í Bandaríkin sem til er! (Ira Glass, sem stýrir This American Life, er sennilega klókasti hversdagskommentator okkar daga, á eftir Sedaris.)
En semsagt: Ég mæli endregið með David Sedaris, hann er frábær - og líka frábær Bille Holiday eftirherma!
Og, meðan ég man: Jólakveðjur frá Minnesota!!!
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 22.12.2006
Update á (mjög raunveruleg) krossferðaplön Robin Hayes til Írak!
Í gærkvöld - sem er snemma um morgun á Íslandi - skrifaði ég færslu um Robin Hayes, sem hefur talað opinberlega fyrir því að þátttaka Bandaríkjahers í borgarastríði Íraka meiki engan sens nema henni sé breytt í alvöru krossferð. Robin Hayes benti nefnilega á hið augljósa: það verður aldrei friður í Mið-Austurlöndum nema öllum aröbunum verði snúið til kristni!
Þessi hugmynd hefur reyndar áður verið rædd af stjórnmálaheimspekingum á borð við Ann Coulter - sem vildi reyndar líka að við myndum drepa alla leiðtoga arabaheimsins, en í kjölfar 9/11 hafði Coulter þetta að segja:
We should invade their countries, kill their leaders and convert them to Christianity
Í allan dag hafa stjórnmálablogg í Bandaríkjunum verið að velta því fyrir sér hvort Hayes hafi virkilega sagt að það ætti að kristna Íraka - því það er almennt viðurkennt að Coulter sé ekki alveg í lagi í höfðinu, meðan Hayes er þingmaður á Bandaríkjaþingi, og orð hans hafa því aðeins meiri vigt en blaðrið í ómerkjungnum Coulter. Hayes er ekki heldur alveg eins blóðþyrstur og Coulter - vissulega er þetta trúboð hans ætlað til þess að dreifa fagnaðarerindinu, ást og náungakærleik, en svoleiðis bissness hefur yfirleitt ekki gengið alveg sársaukalaust fyrir sig, og fyrri tilraunir vesturlanda til að dreifa fagnaðarerindinu og hinni einu sönnu trú meðal íbúa Mið-Austurlanda hafa ekki allar mætt miklum skilningi... og allsendis óvíst að svona vangaveltur skiljist sem friðarboðskapur meðal óbreyttra borgara í Írak. En semsagt: hér er ljósmynd af forsíðu Concord Standard "Your Hometown Newspaper" sem flutti fréttina af krossferðaplani þingmannsins.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 22.12.2006
Þingmaðurinn Robin Hayes (R-NC) hefur lausn á ástandinu í Írak: snúa Írökum til kristni
Hayes lýsti því yfir á Rótarífundi í heimabæ sínum um daginn að Bandaríkjamönnum myndi ekki takast að stilla til friðar í Írak fyrr en búið væri að kristna alla djöfuls heiðingjana sem þar búa:
Stability in Iraq ultimately depends on spreading the message of Jesus Christ, the message of peace on earth, good will towards men. Everything depends on everyone learning about the birth of the Savior.
Hayes er vel þekktur fyrir sérkennilegar hugmyndir sínar um stríðið í Írak - hann er til dæmis einn fárra þingmanna sem enn trúa því að bandaríkin séu að vinna, og hefur reyndar fært rök fyrir því að vaxandi óöld í landinu sé til marks um hversu vel gangi að stilla til friðar...
Það er auðvelt að gera grín að Heyes, eða fárast yfir trúarofstæki Suðurríkjamanna. En raunverulega vandamálið er ekki trúarofstæki, per se, að bandaríkjaher fari að stunda trúboð meðal múslima (þó þeim væri kannski trúandi til þess) eða að utanríkisstefna Bandaríkjanna verði rekin sem krossferðir (þó Heyes virðist dreyma um það). Raunverulega vandamálið er að menn eins og Heyes hafa verið kosnir á þing, þar sem þeir fá að setja lög sem hafa áhrif á líf og framtíð heilla þjóða. Menn sem hafa svona brenglaðar hugmyndir um hvernig heimurinn raunverulega virkar geta aldrei leitt þjóðir neitt annað en út í glötun. Menn sem trúa því virkilega að það sé hægt að leysa borgarastríð (eða whatchamacallit) hinum megin á hnettinum með því að "spread the message of Jesus Christ" eiga ekki að fá að taka sæti á þjóðþingum. Svoleiðis menn geta aldrei fundið skynsamar eða vitrænar lausnir á nokkrum sköpuðum hlut! Meðan repúblíkanar eru að kjósa svona jólasveina á þing er ekki nema von að þeim gangi ílla að stjórna flóknu iðnríki í nútímanum.
Ein helsta ástæða þess að flokknum hefur gengið jafn ílla og raun ber vitni (samanber tap þeirra í kosningunum um daginn) er að þeir hafa of marga jólasveina eins og Robin Hayes innan sinna raða. Og því miður tókst demokrötunum ekki að fella alla þessa grasasna í seinustu kosningum. Vonandi hafa kjósendur Repúblíkana vit á að fella Hayes í prófkjöri fyrir næstu kosningar.
Update: Þessi frétt er búin að birtast á nokkrum pólítískum bloggsíðum (t.d. Carpbetbagger Report - upprunalega virðist hún hafa farið af stað af BlueNC). Upprunalega er frásögnin úr einhverju lókal smáblaði í Norður Karólínu - en enn sem komið er hefur enginn meiriháttar fjölmiðill fjallað um ummæli Hayes. Huffingtonpost og Raw Story pikkuðu þessa frétt reyndar upp fyrir stuttu, svo þess er vonandi stutt að bíða að hefðbundnu fjölmiðlarnir fjalli um Krossfarann Hayes.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 21.12.2006
Jólakort í Tennessee veldur uppþotum - mynd af múslimskri konu þykja alvarleg helgispjöll!
Þetta er með fyndnari "war on christmas" fréttum ársins! Fylkisstjóri Tennesse er tómstundamálari, og í mars var karlinn á ferð um Afghanistan og málaði mynd af ungri konu - og svo fannst honum og konunni hans, sem er guðslifandi feginn að maðurinn skuli hafa sæmilega heilbrigt tómstundagaman, en sé t.d. ekki upptekinn fyrir framan internetið öllum stundum, þetta svo falleg og hjartnæmt málverk, að hann ákvað að prenta það á jólakort. Sem væri hið besta mál ef Afghanir væru ekki allir upp til hópa ógeðslegir heiðingjar sem væru á leið til helvítis - fyrir utan að vera íslamófasistar, talíbanar og hata Jesú Krist, og Jólin! En það eru alltaf einhverjir tilbúnir til að verja Jesús fyrir svona helgispjöllum:
Pastor Maury Davis of Cornerstone Church in Madison said the timing doesn't make sense.
"If on Martin Luther King Day, you sent a picture of a Klansman and said Martin Luther had a dream that this guy would one day get along with the people he's trying to kill, I'm not sure the African-American community would handle that very well," Davis said. "Christmas is about Christ. Put a picture of the Savior on our card."
Davis has been vocal ever since he heard about the card.
"We have to understand that we have a problem between our culture, their culture, the religions possibly. And I think Christmas ought a be kept pure at this time," Davis said.
Fylkisstjórinn hefur reynt að afsaka sig:
Bredeson wrote in his explanation of his choice, "While it may seem odd to put a portrait of a young Muslim woman on a Christmas card, this Season reminds us that He loves His children most of all."
"For people who complained about it, I'll send them a card next year and maybe they'll get the Christmas spirit next year," Bredesen said.
Davis er nefnilega uppfullur af ást og náungakærleik... Og þökk sé citizen journalism á Wonkette vitum við meira um Maury Davis - hann er dæmdur morðingi... og akkúrat þannig menn viljum við að standi vörð um litla baby jesus yfir jólahátíðina! Hverjir aðrir ætli geti varið frelsarann fyrir jólakortum með myndum af múslimum?
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 21.12.2006
Scarborough líka búinn að fá nóg af Bush
Joe Scarborough sem var einn af leiðtogum the pitchfork revolution of 1994 þegar repúblíkanar tóku þingið, og er sennilega skynsamasti sjónvarpspundit/þáttastjórnandi repúblíkana á kapalstöðvunum, er búinn að fá sig fullsaddan af Bush. Umfjöllun Scarborough um yfirlýsingu Bush um að strðið sé tapað - en hann ætli samt að senda fleiri hermenn til Írak - jafnvel þó enginn af herforingjum hersins styðji þá hugmynd og jafnvel þó aðeins 11% Bandaríkjamanna (Scarborough segir 12%) styðji þá hugmynd. Og af þingmönnum? Stöðugt fleiri öldungadeildarþingmenn repúblíkana hafa lýst því yfir að þeir muni ekki styðja að fleiri hermenn yrðu sendir til Írak. Nú síðast Norm Coleman frá Minnesota. Scarborough þótti það sérstaklega varhugavert að Bush vildi ekki segja hvort hann myndi ganga þvert á ráðleggingar yfirmanna hersins, the joint chiefs of staff eða herforingja í Írak. The commander in chief getur ekki rekið stríð þvert á vilja og ráðleggingar yfirmanna hersins!
Scarborough bendir á að ef Clinton hefði staðið fyrir álíka pólítík hefðu repúblíkanar líklega verið búnir að standa fyrir uppreisn! Scarborough kemur nálægt því að segja að Bush sé versti forseti Bandaríkjanna fyrr og síðar.
Þegar menn eins og Scarborough er farnir að segja hluti eins og þessa er ílla komið fyrir forsetanum.
Sjá þessa upptöku af umræðunum Scarborough við á MSNBC við Mike Barnicle, Michael Crowley og Joshua Green. Barnicle, sem er fréttaskýrandi á MSNBC, segir hreint út að Bush sé "totally delusional" og hættulegur, og allt sem hann segi sé "poppycock" - (vídeóið er 13 mínútur, og tekur smá tíma að opnast).
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 21.12.2006
Bush fjölskyldan loksins hætt í stjórnmálum?
Fyrir stuttu síðan voru stjórnmálaskýrendur að velta því fyrir sér hvort Jeb Bush, litlibróðir George, myndi bjóða sig fram til forseta 2008 eða 2012, og verða þarmeð þriðji Bush-inn, á eftir Pabba-Bush (41) og Dubya Bush (43) til að stýra Bandaríkjunum út í ógöngur við almenn fagnaðarlæti repúblíkana. Jeb hefði getað orðið 44 eða 45 forseti Bandaríkjanna.
En nú virðist sem stóri bróðir hafi eyðilagt öll slík plön - hörmuleg frammistaða hans og almenn andúð alls þorra vitiborins fólks á utanríkispólítík hans og annarri stjórnsýslu virðist hafa gert útaf við öll plön um að framlengja Bushveldið! Jeb á að hafa sagt spænskumælandi blaðamönnum í Miami: "No tengo futuro", sem þýðir víst "Ég á mér enga framtíð", eða eitthvað álíka.
Bush did not elaborate on his terse "no future" comment. But he has said repeatedly over the past year that he would not run for president in 2008 and has never seemed comfortable with talk about Bush III or the Bush presidential dynasty.
"Jeb would have made an outstanding presidential candidate," said Kansas Sen. Sam Brownback who joined Bush at a luncheon on Wednesday hosted by a Cuban American political action committee.
Brownback er sjálfur að sækjast eftir tilnefningu Repúblíkana, og er eini sanni "social conservative" frambjóðandinn, því hvorki Giuliani né McCain eru nógu íhaldssamir fyrir "the base".
Það er stutt síðan Pabbi-Bush fór að háskæla fyrir framan þing Flórída meðan hann var að lýsa mannkostum Jeb:
He then broke down in tears mentioning his son, Gov. Jeb Bush, as an example of leadership and the way he handled losing the 1994 governor's race to popular incumbent Democrat Lawton Chiles. He vaguely referred to dirty tricks in the campaign.
"He didn't whine about it. He didn't complain," the former president said before choking up in front of lawmakers, Gov. Bush's top administrators and state workers gathered in the House chamber for the last of the governor's leadership forums.
Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þessi fjölskyldumál Bushfeðganna, en ég vona að Jeb standi við að vera hættur í pólítík. Bandaríkin eru búin að þola alveg nóg af hendi þeirra!
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)