Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Samkvæmt Wonkette hefur sést til stórra trukka frá The Mid-Atlantic Shredding Services á leið til heimilis Dick Cheney. Þegar Cheney þarf að eyða skjölum er nefnilega ekki nóg að nota venjulega litla pappírstætara, og það tekur of langan tíma að brenna skjölum í arninum...
M
Það hefur orðið stöðugt erfiðara að fylgjast með því hvaða þingmenn Bandaríkjaþings hafa verið dæmdir fyrir svik og pretti, og hverjir eru ennþá bara grunaðir um glæpi og svo hverja lögreglan er að rannsaka... Roll Call hefur tekið saman lista yfir helstu lögreglurannsóknir í þinginu - þeir skilja aumingja Katherine Harris utundan, en hún sætir rannsókn eftir að hafa þegið mútur frá MZM inc, fyrirtæki sem framleiddi einhverskonar hugbúnað fyrir herinn, en Duke Cunningham hafði einnig þegið stórfé frá MZM. Það er athyglisvert að á listanum eru aðeins 4 demókratar, en 13 repúblíkanar, 14 ef Harris er talin með.
M
mán. 30.10.2006
Leiðbeiningar: Hvernig maður á að brjótast inn í rafrænar kosningavélar, ákveða útkomu kosninganna
Undanfarnar vikur hef ég lesið hverja færsluna á fætur annarri um að Repúblíkanaflokkurinn hafi undirbúið einhverskonar stórfellt samsæri til þess að vinna kosningarnar í haust - fyrir utan gamlar og klassískar brellur, eins og að ógna og hræða kjósendur úr minnihlutahópum, breyta reglum um kosningaþátttöku með stuttum fyrirvara, neita kjósendum um kosningarétt þegar þeir mæta á kjörstað osfv osfv - hafa áhugamenn um kosningar miklar áhyggjur af því að rafrænar kosningavélar sem búið er að koma upp í fjölmörgum kjördæmum séu úrbúnar þannig að frambjóðandi repúblíkana muni vinna, sama hvernig atkvæðin falla. Þegar NPR (National Public Radio), sem yfirleitt er mjög varkárt í allri umfjöllun sinni, er farið að fjalla um þessar vangaveltur í fréttaskýringaþáttum er það til marks um að áhyggjur af yfirvofandi kosningasvindli sé ekki lengur bundið við einhvert "fringe" úrillra Trotskýista á vinstrivængnum.
Og til að sanna að þetta sé ekki bara ímyndun hafa framtakssamir menn tekið saman leiðbeiningar um hvernig best sé að brjótast inn í rafrænar kosningavélar. Jon Stokes á ars technica:
Over the course of almost eight years of reporting for Ars Technica, I've followed the merging of the areas of election security and information security, a merging that was accelerated much too rapidly in the wake of the 2000 presidential election. In all this time, I've yet to find a good way to convey to the non-technical public how well and truly screwed up we presently are, six years after the Florida recount. So now it's time to hit the panic button: In this article, I'm going to show you how to steal an election.
Now, I won't be giving you the kind of "push this, pull here" instructions for cracking specific machines that you can find scattered all over the Internet, in alarmingly lengthy PDF reports that detail vulnerability after vulnerability and exploit after exploit. (See the bibliography at the end of this article for that kind of information.) And I certainly won't be linking to any of the leaked Diebold source code, which is available in various corners of the online world. What I'll show you instead is a road map to the brave new world of electronic election manipulation, with just enough nuts-and-bolts detail to help you understand why things work the way they do.
Stokes er hins vegar ekki algjör svartsýnismaður:
Right now, the only thing standing in the way of the kind of wholesale undetectable election theft that this article has outlined is the possibility that DREs were forced onto the public too rapidly for election thieves to really learn to exploit them in this cycle.
Leiðbeiningar og umfjöllun Stokes er hægt að finna hér.
M
lau. 28.10.2006
Repúblíkanar kenna fjölmiðlum um minni hagvöxt
Meirihluti Bandaríkjamanna telur efnahagsástandíð í Bandaríkjunum slæmt - þrátt fyrir að hlutabréfavísitölur hafi verið að stíga og hagvöxtur hafi verið sæmilegur undanfarin misseri, og þrátt fyrir skattaendurgreiðslur forsetans. Þetta ergelsi hefur kannski eitthvað með það að gera að venjulegt millistéttarfólk hefur ekki efni á að kaupa sjúkratryggingar og senda börnin í háskóla. Vaxandi skuldsetning bandarískra heimila undanfarin ár má að mestu rekja til hækkandi skólagjalda, hækkandi eldsneytisverðs og hækkandi tryggingakostnaðar. Og samkvæmt nýjustu tölum hefur hagvöxtur líka dregist saman, og útlitið er ekki mikið betra.
Og hverjum er þetta að kenna? Efnahagsstjórninni? Nei, auðvitað ekki. Þetta er allt fjölmiðlum að kenna! Roy Blunt (R-MO) hélt þessu fram í viðtali hjá Fox news:
But I think a bigger story is that so much of the media - and I dont put Fox News in this category - has constantly talked down this economy. Believe me, if we were in the mid-90s, Bill Clinton was president, we had the things happening in the economy that are happening today, I am convinced there would be a totally different national media coverage by most of the media of this economy
Hvernig fréttaflutningur getur stjórnað hagvexti er mér hulin ráðgáta. Það sem er athyglisvert við þennan hugsunarhátt er að Repúblíkanar virðast ekki tilbúnir til þess að horfast í augu við raunveruleikann. Í þeirra huga er raunveruleikinn einhvernveginn búinn til í fjölmiðlum: Raunveruleikinn sé búinn til af fólki sem sitji og skrifi greinar, og ræður, fólki sem talar í sjónvarpi og útvarpi. Og ef okkur mislíkar það sem við sjáum í kringum okkur hljóti það að vera vegna þess að ílla innrættir blaðamenn og pólítískir aktívistar einhverstaðar á ritstjórnarskrifstofum eða "inní blogóspherinu" séu að skrifa upp vondan raunveruleika.
Leiðtogar Repúblíkana hafa nefnilega sannfærst um að orðræðan og ídeológían sé það sem skipti öllu máli, að raunveruleikinn sé ekkert annað en afleiða orða. Tilraunir þeirra til þess að þagga niður í hverjum þeim sem leyfir sér að efast um línu flokksins í utanríkismálum eða efnahagsmálum (þ.e. að allt sé í himnalagi) sé einhvernveginn að vinna fyrir óvini Bandaríkjanna eða reyna að grafa undan velsæld Bandaríkjanna.
Irving Kristol, faðir nýíhaldsstefnunnar, sagði eitt sinn að "a neoconservative is a liberal mugged by reality, one who became more conservative after seeing the results of liberal policies". Það er kaldhæðnislegt að nú, þegar nýíhaldsmenn eru loksins búnir að leggja undir sig Hvíta Húsið og náð tökum á þingliði Repúblíkanaflokksins skuli það vera þeir sem neita að horfast í augu við raunveruleikann og ömurlegar afleiðingar sinnar eigin óstjórnar.
M
lau. 28.10.2006
5 Milljón $ í peningaverðlaun fyrir besta forseta Afríkuríkis
Til þess að hvetja til heiðarlegrar og effektívrar stjórnsýslu hefur súdanski auðmaðurinn Mo Ibrahim heitið að veita árlega 5 milljón dollara í verðlaun til heiðarlegasta og besta forseta Afríkuríkis. Verðlaununum og skilyrðunum sem þarf að uppfylla til að hljóta þau er lýst á heimasíðu Ibrahim.
Each year the winning leader will, at the end of his term, get $5m (£2.7m) over 10 years and $200,000 (£107,000) each year for life thereafter. "We need to remove corruption and improve governance," Mr Ibrahim said.
...The Mo Ibrahim Prize for Achievement in African Leadership will be launched in London on Thursday... It will be available only to a president who democratically transfers power to his successor. Harvard University will do the measuring to see just how well the president has served his or her people during their term in office.
Nelson Mandela, former US President Bill Clinton and UN Secretary General Kofi Annan are among those who have welcomed the initiative.
Gagnrýnisraddir hafa sagt að það sé út í hött að það þurfi að verðlauna menn fyrir að vinna vinnuna sína, ræna ekki samlanda sína, og troða hvorki lýðræði og mannréttindi fótum. Auk þess sé Ibrahim að ýta undir hugmyndina um "big men" - það sé í höndum sterkra leiðtoga og þjóðarfeðra að lyfta Afríkuríkjum upp úr kúgun, borgarastyrjöldum og fátækt.
Það má svosem vel vera. Auðvitað er það undir heiðarlegum almenningi sem vinnur í bönkum og á allrahanda skrifstofum, að sjá til þess að yfirmenn og stjórnmálamenn komist ekki upp með stórfelld rán og gripdeildir. En því miður virðist sem afrískir þjóðarleiðtogar og valdaelítur hafi ákveðið að ríkið væri fyrst og fremst effektív maskína til að ræna samlanda sína. George Ayittey, hagfræðingur frá Ghana lýsti ástandi þannig fyrir nokkrum árum:
"Government", as it is known in the West, does not exist in much of Africa. What exists is a "mafia state" - government captured by gangsters, crooks and scoundrels, who use the instruments of the state to advance their own economic interests, those of their cronies and tribesmen."
Til þess að viðhalda jafnvægi finnst mér að DeBeers og Shell ættu að veita verðlaun fyrir "most business friendly head of African State". Ég tilnefni Eduardo Dos Santos, forseta Angóla.
M
fös. 27.10.2006
Verstu heimasíður frambjóðenda til bandarísku þingkosninganna
Cnet hefur tekið saman lista yfir 17 verstu heimasíður kosningabaráttunnar - og það er augljóst að smekkur manna og skopskyn er misjafnt. Eða kannski er það frekar að smekkleysi manna er misjafnlega mikið. Besta heimasíðan er þó vafalaust síða Kay Granger, sem er repúblíkani og í framboði í Texas. Kay virðist hafa komist á lista vegna uppskriftar sem hún birtir að einhverju sem hún kallar "Easy, Killer Margaritas".
Uppskriftin er:
Frozen Limeade (any size)
Tequila (your choice)
Beer (your choice)Empty the limeade into a pitcher. Using the empty can as a measure, add 1 can of tequila and 1 can of beer to the pitcher
Stir and pour over ice. Squeeze wedge of fresh lime on top.
Kannski drekkur fólk svonalagað í Texas, en ég hef aldrei áður heyrt um bjór-tequila kokteila, sérstaklega ekki þegar það eru jöfn hlutföll af tequila og bjór! Mín reynsla er reyndar að bjór og tequila, blandað saman, sé einmitt "killer", og ekki í neinni jákvæðri merkingu.
Listi Cnet er hreinasta unun fyrir áhugafólk um ljótar heimasíður.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undanfarna daga hafa orðrómar gengið um veraldarvefina um að bandaríkjaher hafi lokað á aðgang hermanna að fjölmörgum "vinstrisinnuðum" bloggsíðum, og líka bloggsíðum, eins og Wonkette, sem fást aðallega við að flytja fréttir af Macaca Allen og Krazy Kitty Harris, og eru aðallega á móti foráttuheimsku og spillingu. Þegar hermenn í Írak reyna að opna heimasíðu Wonkette birtast eftirfarandi skilaboð:
forbidden, this page (http://www.wonkette.com) is categorized as (Personal Pages) ALL SITES YOU VISIT ARE LOGGED AND FILED.
CNN fjallaði um þetta sérkennilega mál í fyrradag, og Wonkette birti einnig tölvupóst sem þeir fengu frá landgönguliða í Írak:
I am currently stationed in Al Taqaddam, Iraq with the Marines youve done a short piece about this before, but this is getting ridiculous.
It seems that every non-conservative politics website has been blocked by our firewall guys including your site. The reason it is blocked is because it is a personal page. Which means they dont have a reason to block it but they want to block it, so they do. This was done recently, just in time for mid-term elections. As I said, it was not only your website, I have gone through lists of liberal sites and most of them are blocked. Ive also taken the time to go to some conservative sites .none of which are blocked.
I dont have the words to describe how I feel. They have sent me to this desert three times each time saying that we are defending freedom which is BS and everyone knows it. And on top of that they have taken away many of the freedoms that we are supposedly fighting for .
I dont think there is much anyone can do about this, but I just wanted you to know that this was still going on.
Þessar skemmtilegu fréttir berast á sama tíma og Worldwide Press Freedom Index kemur út, en samkvæmt því eru Bandaríkin í 53 sæti ásamt Botswana og Króatíu. Ísland fær að sitja í efsta sæti með frændum okkar í Finnlandi, þrátt fyrir að stjórnmálamönnum á Íslandi leyfist að panta hvaða fréttamenn taka við þá viðtöl.
M
ps. ég er hræddur um að ég muni ekkert skrifa þessa helgi - tölvan virðist hafa smitast af einhverjum sérlega íllskeyttum forritsbut, og mér er sagt að eina lækningin við þessum sé að setja allt stýrikerfið upp aftur, sem er bæði leiðinlegt og tímafrekt!
fim. 26.10.2006
Hryðjuverkamenn kjósa demokrataflokkinn
Ein aumasta röksemdafærslan fyrir því að Repúblíkanar séu þeir einu sem hægt sé að treysta til þess að leiða Bandaríkin í stríðinu gegn hryðjuverkum er að hryðjuverkamennirnir séu allir einhverskonar demokratar, og að hryðjuverk og árásir á bandaríska hermenn í Írak séu allt partur af einhverskonar kosningaherferð Al-Qaeda fyrir Demokrataflokkinn. Ég hef svosem ekki persónulega séð neinar sannanir fyrir því að Abu Musab al-Zarqawi hafi ekki verið meðlimur í Demokrataflokknum, en það getur varla skipt nokkru máli hvort hryðjuverkamennirnir vilji að Demokratar eða Repúblíkanar vinni í kosningunum í nóvember. Kosningar snúast um að velja hæfasta fólkið til þess að stjórna og leiða þjóðir. Þær eru ekki tækifæri til þess að senda skilaboð til fanatíkusa í fjarlægum löndum.
En Repúblíkanar vita auðvitað að það myndi enginn heilvita manneskja sem hefur fylgst eitthvað með fréttum komast að þeirri niðurstöðu að þeir væru réttu mennirnir til þess að stýra Bandaríkjunum. Þá er um að gera að sannfæra kjósendur um að Al-Qaeda yrði ægilega svekkt ef Repúblíkanar vinni. Og fyrst það er ekki hægt að sigra Al-Qaeda og "the insurgents" í Írak er allavegana hægt að ergja þá með því að kjósa Santorum og Conrad Burns?!
Í útvarpsviðtali hjá Scott Hennen, sem er talk radio host í Norður Dakota, lýsti Donald Rumsfeld því yfir að terroristarnir væru allir að vonast eftir sigri demokrata:
MR. HENNEN: I have a source in the Pentagon that has told me that recently there was a website of one of the terrorist groups, and I believe it might even be multiple websites, that are specifically in Arabic talking about influencing our elections in two weeks, about how the next two weeks is very crucial; the violence needs to be ramped up so as to influence the elections. Is that true?
SEC. RUMSFELD: I have seen those reports that there are terrorist websites that say that. It would be logical, obviously. It worked in Spain. And these people are smart. They're vicious. They're determined. And they watch very carefully what's taking place in the United States. They know there's this coming up. And I wouldn't doubt it for a second.
Rumsfeld hélt því fram að það væri "rökrétt" að hryðjuverkamenn væru að reyna að skapa glundroða til þess að demokrötum myndi ganga betur, og tók heilshugar undir analýsu Hennen:
Here they are, getting up every day saying, Weve got an election in two weeks in America, gang, and we want to change horses over there because we dont like the folks were having to deal with now; theyre a little tough on us. So lets get out there and lets make some noise.
Rumsfeld er ekki einn um þessar kenningar. Dick Cheney, Bush og Tony Snow hafa undanfarna viku allir reynt að halda þessu sama fram:
... the terrorists are actually involved and want to involve themselves in our electoral process, which must mean they want a change
Theres certainly a stepped up level of violence, and were heading into an election. They [Al Qaeda] believe that if they can create enough chaos, the American people will grow sick and tired of the Iraqi effort and will cause government to withdraw.
And as Lieutenant General Caldwell said today in his briefing in Baghdad, it is possible, although we don't have a clear pathway into the minds of terrorists, it is possible that they are trying to use violence right now as a way of influencing the elections.
Það er vissulega rétt að við höfum ekki "a clear pathway into the minds of terrorists" og það má guð einn vita hvað þeir eru að hugsa. Hvað þeir ætli að hafa í kvöldmatinn á laugardaginn? Hvað málið sé eiginlega með Madonnu og Malawi ættleiðinguna? Hvort Brad Pitt sé ekki betur settur með Angelínu Jolie, enda hún miklu sætari og flottari en Jennifer Aniston? Hver veit. Kannski eru einhverjir þeirra líka að hugsa um kosningarnar í nóvember.
En þegar Bush er spurður hreint út, hvort hann hafi einhverjar heimildir fyrir því að hryðjuverkamenn eða "the insurgents" séu að reyna að hafa áhrif á kosningarnar í nóvember, er svarið einfalt: nei!
STEPHANOPOULOS: So theyre trying to influence the elections?
BUSH: It could be. I dont know. I havent - I dont have any intelligence that says that.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 26.10.2006
Bandaríkjaher sendir hermönnum í Írak ítarlegar leiðbeiningar um hvernig eigi að kjósa frambjóðendur Repúblíkana
Þegar Mark Foley sagði af sér þingmennsku, í kjölfar tölvupóstsendinga, þóttust demokratar nokkuð öruggir með að vinna sæti Foley í Flórída. Það var nefnilega of stutt til kosninga til þess að hægt væri að taka nafn Foley af kjörseðlinum. Kjósendur Repúblíkana yrðu því að láta sig hafa að greiða pervertinum Foley atkvæði á kjördag. Að vísu myndu öll atkvæði Foley teljast hafa fallið Joe Negron í skaut - en flokknum tókst að fá Negron til að taka sæti Foley. Semsagt: nafn Foley er ennþá á kjörseðlum, en ekki nafn Joe Negron. Þeir sem vilja greiða Negron atkvæði þurfa því að krossa við Foley.
Þetta er allt mjög, mjög flókið, og herinn, sem þekkir sitt fólk, sá því ástæðu til þess að senda öllum hermönnum frá Flórída nákvæmar leiðbeiningar um hvernig þeir ættu að kjósa frambjóðanda Repúblíkana þegar þeir gengju að kjörborðum 7 nóvember. Herinn sá hins vegar enga ástæðu til þess að minnast á að það væru aðrir í framboði en Foley, svo Tim Mahoney, frambjóðandi demokrata neyddist til þess að senda annað bréf til hermanna, þar sem hann útskýrði fyrir þeim að það væri líka hægt að kjósa sig...
Special Instructions for Voters in the 16th Congressional District of Florida
On September 29th, Mark Foley resigned from the United State House of Representatives. He also withdrew as the Republican Candidate for the House of Representatives in Florida's 16 th District.
Pursuant to Florida Law, the Florida Republican Party nominated Joe Negron as the Republican Candidate in the 16th District replacing Foley. Pursuant to Section 100.111(4) of Florida Statute, Foley's name will remain on the ballot for both absentee and regular ballots. Any votes cast for Foley will count towards the total of the substitute candidate.
Voters from Florida's 16th Congressional District should be aware that any votes cast for Mark Foley will be counted toward the total of Joe Negron. Additionally, voters who wish to cast a vote for Joe Negron should cast their vote for Mark Foley.
Foley og Negron eru nefndir á nafn níu sinnum, og Repúblíkanaflokkurinn þrisvar. Það er augljóst hvernig herinn vill að menn kjósi! Myndin að ofan er af Negron.
M
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rush Limbaugh, sem er hvorki læknir né sérlega vel gefinn, lýsti því um daginn yfir að sjúkdómseinkenni leikarans geðþekka, Michael J Fox, sem þjáist af Parkinsonsveiki, væru eintómur tilbúningur. Fox væri að gera sér upp kippi og ið bara til þess að fá bandaríkjamenn til þess að kjósa frambjóðendur sem hafa stofnfrumumorð á stefnuskrá sinni!
Svo bárust fréttir af því að Limbaugh hefði beðist afsökunar. En allskonar bloggarar og fréttaskýrendur hættu samt ekki að gera grín að læknisfræði Limbaugh, svo hann einfaldlega tók afsökunarbeiðnina til baka!
I stand by what I said. I take back none of what I said. I wouldnt rephrase it any differently. It is what I believe; it is what I think. It is what I have found to be true.
Og það eru fleiri en Limbaugh sem hafa vit á læknisfræði. Brian Kilmeade þáttarstjórnandi á Fox and Friends hefur nefnilega verið að horfa á sjónvarpið, og Boston Legal þátt sem Michael J. Fox lék í, og hann tifaði og skalf ekkert í Boston Legal! Að vísu man Brian ekki hvað sjónvarpsþátturinn hét, og það er rétt mögulegt að hann hafi verið að rugla Michael J Fox saman við William Shatner?
MANCOW: Hey guys, what you think about this Michael J. Fox thing? I mean, you cant win. You cant win attacking that guy. Its like Cindy Sheehan, her son died. I hate this stuff. You cant win. Michael J. Fox on TV, he wins. Dont you agree?
GRETCHEN: Yeah, you know. Its so tough to watch that commercial and I just think youre better off not touching the whole thing.
BRIAN: But, thats an easy way out. Youre talking about - youre talking about stem cell research. Thats a heated debate, its an intellectual debate. And I also think that Michael J. Fox
MANCOW: You dont have to vote for his candidate.
BRIAN: Right. Michael J. Fox on Boston Common (sic) looked great. I mean, I know they cut it different and edit it different, but he looked fantastic.
MANCOW: I talked to William Shatner about it
GRETCHEN: Yeah, but theres no doubt hes seriously ill.
MANCOW: Youre talking about Boston Legal, he was fine.
BRIAN: Boston Legal, yeah.
M