þri. 17.10.2006
10 vitlausustu meðlimir Bandaríkjaþings, skv Radar
Netritið Radar hefur tekið saman stórskemmtilegan lista yfir vitlausustu þingmenn Bandaríkjanna. Lesendur Freedomfries kannast auðvitað við Conrad Burns (R-MT) og Katherine Harris (R-FL). Harris kemst verðskuldað í fyrsta sæti á lista Radar, en það eru nokkrir aðrir þingmenn sem áhugamenn um heimskuleg stjórnmál þurfa alveg nauðsynlega að kynna sér. Ég mæli sérstaklega með "Mean" Jean Schmidt (R-OH), en hún hefur vakið athygli fyrir að kalla John Murtha (decorated marine corps veteran) heybrók, og fyrir að birta undir eigin nafni "op-ed" blaðagreinar sem hún stal orð fyrir orð, í heilu lagi, frá öðrum repúblíkönum. Svo er það Jim Bunning (R-KY), sem hefur ítrekað talað um hryðjuverkaárásirnar 11 nóvember 2001: Bunning hefur oft þótt hegða sér svo einkennilega, að fyrir kosningarnar 2004 neyddist hann til þess að sýna læknisvottorð um að hann þjáðist ekki af alzheimer...
Listi Radar:
- Representative Katherine Harris (R-FL)
- Representative Donald Young (R-AK)
- Senator James Inhofe (R-OK)
- Representative J.D. Hayworth (R-AZ)
- Senator Barbara Boxer (D-CA)
- Representative Jean Schmidt (R-OH)
- Representative Cynthia McKinney (D-GA)
- Senator Conrad Burns (R-MT)
- Representative Patrick Kennedy (D-RI)
- Senator Jim Bunning (R-KY)
M
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Senílir pólítíkusar | Breytt 18.10.2006 kl. 02:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.