Höfundur er Magnús Sveinn Helgason, samanber myndina hér til hliðar. Fæddur í Rvk 107, 1974, uppalinn í Finnlandi og Rvk 101. Eftir að hafa fengið Fulbrightstyrk til doktorsnáms í sagnfræði við Minnesotaháskóla haustið 2000, flutti ég ásamt eiginkonu, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og börnum, Guðnýju Margréti og Jóni Múla, til Minneapolis-St Paul.
Ég hef ekkert tekið þátt í samfélags eða stjórnmálum, fyrir utan að hafa setið í stjórn Suomi-félagsins, Vináttufélags Íslands og Finnlands, og stjórnarsetu í Frjálshyggjufélagi Minnesotaháskóla, sem varaformaður.
Fyrir utan að blogga um bandarísk stjórnmál hef ég skrifað um sögu millistríðsáranna, sögu verðbréfaviðskifta, sögu neyslusamfélagsins og stöðu sagnfræðinnar og undirgreina hennar. Önnur áhugamál, fyrir utan að lesa internetið? Sennilega hjólreiðar og sjónvarpsgláp.
Nýlegar greinar eftir mig á Hugsandi.is:
- Yfirlitið og saga samtímans
- Endalok sögunnar og yfirlitið á tímum hnattvæðingar
- Mannkynssagan: Saga veraldarinnar allrar eða bara vesturlanda?
- Hvað er að neyslusamfélaginu? Skortur á hugsun eða þekkingu?
- Klíómetrían og einangrun hagsögunnar í Bandaríkjunum
Þeir sem hafa einhverra hluta vegna áhuga á að hafa samband við mig geta sent mér tölvupóst, magnus@umn.edu.
M