Limbaugh: Demokratar á bak við pervertinn Foley

beverly_hills_cop_ii.jpg

Rush Limbaugh hefur alveg sérstakan hæfileika til að sjá hlutina í sínu rétta ljósi. Í þætti sínum í gær settist hann yfir atburðarásina sem leiddi til þess að Mark Foley var afhjúpaður, og komst að þeirri óumflýjanlegu niðurstöðu að það væri einhverskonar flókið samsæri sem byggi að baki þessu öllu:

Im just thinking out loud here. What if somebody got to the page and said, you know, we want you to set Foley up. We need to do a little titillating thing here.

Now, folks, I dont want to be misundersood here. Im not trying to mount any kind of a defense. ... Im just telling you that the - the - the [þessi hikandi "the... the... the" ásamt andardrætti eru eitt af einkennismerkjum Limbaugh] the orgy and the orgasm that has been taking place in the media since Friday and with the Democrats is - its all coordinated, and its all - its all oriented toward the election. Theres no concer about the kid - no concern about the children. ... In their hearts and minds and their crotches, they dont have any problem with what Foley did. They've defended it over the - over the years.

En það eru ekki bara demokratarnir sem er alveg sama - því Matt Drudge, sá sami og heldur úti Drudge report, hélt því fram í útvarpsþætti sínum í gær að það geti enginn glæpur hafa átt sér stað, því unglingspiltarnir hafi allir verið viljugir þátttakendur, og hafi skemmt sér konunglega.

"It wasnt coerced" Drudge went on to say that "the kid was having fun with this" because the conversation included "these LOLs throughout the entire conversation, tehse "laugh out louds"...

Þá hélt hann því einnig fram að ungmennin hefðu sennilega verið að tæla Foley "egging the Congressman on"

These kids were playing Foley for everything he was worth.

Semsagt: internetpúkinn, samsæri pólítískra andstæðinga, viljug ungmenn sem tæla heiðarlegan þingmann. Þetta virðist vera open and shut case.

En það sem mér finnst verst við þetta Foley hneyksli allt er að nú man enginn lengur eftir Detroitlöggunni Alex Foley, sem ólíkt Mark Foley barðist fyrir röð og reglu (og góðu siðgæði), og var þess utan miklu fyndnari. (Á myndinni eru Foley og Billy Rosewood að gera sig tilbúna til að slá ógn og skelfingu í hjörtu pastelklæddra stórglæpamanna í Hollywood Heights.)

M


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FreedomFries

Alveg pottþétt! Limbaugh er líka svo djöfullega vitlaus að hann sér ábyggilega ekki þversagnirnar og ruglið í því sem hann segir. Og svo er hann líka ílla innrættur - svolítið eins og O'Reilly, og Katherine Harris. Michael Savage og Ann Coultner eru hins vegar greindari, en mun verr innrætt og mun fyllri af mannhatri.

En maður ætti að trúa því að fólk meini það sem það segir. _Yfirleitt_ meinar fólk það sem það segir, og það er langsamlega einfaldast að ganga út frá því.

M

FreedomFries, 3.10.2006 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband